Það er allt á leið til $%#&”(!
Posted on Mar 18, 2008 in BlogÞetta er hrikalegt, fyrir helgi og í dag er búið að vera að loka stöðum í krónunni á spretta hraða og það er algjörlega að fara með gengið út í hafsauga… hún hefur féll um 6,97% í dag er það mesta gengissveifla á einum degi frá upphafi. Dollarinn er kominn yfir 75 kr frá 68,50 fyrir viku. Einnig féll úrvalsvísitalan um 3,45% í dag sem er hrikalegt, en ég á sem betur fer engin hlutabréf lengur. Skellti öllu til skammtíma í peningamarkaðsbréf í sumar! Það var sko greinilega ekki til skammtíma en greinilega besta ákvörðun sem ég hef gert með fjármagn…
Það er hinsvegar ekki bara hérna heima sem allt er í ruglinu heldur er sama sagan báðu megin við Atlantshafið :/
Á sunnudaginn gaf Seðlabanki Bandaríkjana út stefnubreytingu hjá sér sem á að sporna gegn skorti á fjármagni að vissu leiti en menn eru ekki nógu bjartsýnir á hvort það muni hafa næg áhrif. Heitasta umræðuefnið um helgina er samt búið að vera eignahaldsfélagið Bear Stearns en hlutabréf í því hafa fallið úr $87,30 í $4,81 á hlut á rétt rúmum 20 dögum… JPMorgan hefur verið orðaður við að kaupa upp starfsemi félagsins á $2 á hlut eða $236M sem er náttúrulega smáaurar en talið er að broker deild félagsins eina og sér sé metin á allavegan $1BN.
Í kjölfar Bear Stearn málsins eru menn staðfastir á því að Seðlabanki Bandaríkjana muni fell vexti enn á ný og nú um 75bp til viðbótar í dag. Ef það gerist ekki þá eru menn vísir til að selja allt draslið sitt og það mun valda enn einu domino ferlinu sem mun gera allt brjálað. Eins og það sé það ekki nú þegar…
Hér eru gröfin frá tæknigreiningardeildum yfir stöðuna á mörkuðum beggja vegna Atlantshafsins:

Related posts from the blog:
- Blogmenning og það sem finnst
- Ahhhh það er svo mikið að gera…
- Allt of mikið að gera
- Matareitrun
- 2 dagar í Maraþon






Ójá og það sér ekki fyrir endann alveg strax.
Hlustaði á fyrirlestur fyrir 2 vikum hjá manni sem er forstjóri fasteignalánafyrirtækis í Denver. Hann sagði að “subprime” lánin sem hrundu síðasta haust eigi ennþá eftir að skila sér að fullu yfir í fyrirækjalán og jafnvel fasteignalán sem eru ekki subprime. Hann sagðist ekki halda að botninum væri náð fyrr en það gerðist og bandaríska ríkisstjórnin þyrfti að grípa inn í því markaðurinn væri svo þurr af fjármagni að hann væri ekki í stöðu til að laga sig sjálfur. Þannig að þú getur setið á þínum peningamarkaðsbréfum í amk. nokkra mánuði til viðbótar.
Gaman að þessu meðan maður á ekki íslenskar krónur eða hlutabréf ;)