Þjóðhátíð 2007
Posted on Aug 11, 2007 in BlogÞað var svo sjúklega gaman seinustu helgi að það er varla hægt að lýsa því með orðum en ég ætla mér samt að reyna. Þjóðhátíð í eyjum hófst að sjálfsögðu á fimmtudeginum 2. ágúst þegar ég, Bjössi og fjölskyldan héldum af stað með Herjólfi sjóveginn til Eyja. Hittum Guðjón og Jón Þór um borð og svo bar setið á spjalli þar til komið var í Heimey. Á leiðinni frá borði lennti ég í fyrstu fíkniefnaleitinni af mörgum (5) yfir helgina því núna fyrst kemur í ljós að ég lít víst út eins og argasti dópsali. Eftir að við komum hittum við Héðinn, komum okkur fyrir, sóttum bjórinn okkar og svo skelltum við okkur á Húkkaraballið eða að hanga fyrir utan það því inni voru að sjálfsögðu bara 15-16 ára smá stelpur. Þar hittum við Jón Þór, Kjarra, Jóa, Darra og fleiri og skelltum okkur á Lundan að djamma hringum eitthvað eldra lið.
Á föstudeginum vöknuðum við í fyrra fallinu, kíktum á Hotel Mamma (já það heitir það), fengum okkur lunda og rækju samlókur og fórum svo niður í dal að tjalda hvíta tjaldinu. Um kvöldið komu svo Magga, Kristveig, Helgi og Addi. Að sjálfsögðu var tekist handa við að hella rækilega í sig. Eftir smá drykkju var þetta komið út í brjálað 90′s djamm í húsinu og svo skelltum við okkur niður í dal þar sem við tók brjálað djamm og svo bættist Bjarni við hópinn þannig að ég fór uppí hús að koma honum inn. Þegar komið var aftur niður í dal var kíkt hvíta tjaldið hjá fjölskyldunni þar sem var gítarstemming með Stebba og Eyva. Kvöldið endaði ég svo steinsofandi í hvíta tjaldinu :)
Á laugardeginum var crazy gott veður þannig að ég, Bjössi og Kjarri skelltum okkur í sund. Í sundi hittum við Kollu, Rafn, Gísla, “Snooker borð stelpurnar” ofl. Eftir sundið héldum við aftur í húsið og á sama tíma komu Brynjar, Nonni, Hannes, Dóra, Jón Ingi og Hlynur þannig að við vorum orðin þrettán í húsinu. Upp hófst góð drykkjustemming og fullt af fólki kom í heimsókn og það var gítarstemming og svona. Á ákveðnum tíma ákvað ég að nú gæti ég ekki meira og steinsofnaði í sófanum. Eftir góða stund í húsinu fórum við í dalinn þar sem var ráfað um hitt alveg rosa mikið af fólki, farið í hvít tjöld og hangið í brekkunni. Þetta kvöldið tókst mér að drattast uppí hús og hrynja í sófan, good times.
Brátt tók sunnudagurinn við og hann er náttúrulega aðal dagurinn. Farið var að sjá á fólki og enginn neitt voða ferskur í dags byrjun en þá reddaði sturtan góða málunum. Það var byrjað snemma á drykkjunni, gesta heimssóknum og taning 101. Kíkti aðeins niðrí dal og hitti þar fyrir gamla versló liðið og einn dauða drukkinn pólverja í miðjum hringnum þeirra. Hann hafi víst komið í hringinn, sagt eitthvað bull, girt niður um sig og farið að sofa, vaknaði svo nokkrum tímum seinna, sagði eitthvað bull og fór í burtu, good stuff. Um kvöldið var svo brekkusöngurinn, rugl og rölt í dalnum og leitin að “skemmtistaða-sleik” fyrir Arnór því hann átti afmæli. Elli hafði ákveðið að þó hann þver tæki fyrir að fara til Eyja þetta árið varð hann að koma á sunnudeginum og lét sjá sig ferskur að vanda.
Verðlaunin skrautlegu “characterar” helgarinnar fá:
Related posts from the blog:
- Árshátíð Pragma og Tvíundar 2007
- London 2007
- Hallgeirsey 2007
- Mission Impossible III
- 28 days later (pun intended)






Snooker borðs stelpurnar……..:P
Leitin að skemmtistaðarsleik handa afmælisbarninu endaði með hörmulegum afleiðingum, þegar þið funduð sennilega ófríðustu konuna á þjóðhátíð í Eyjum þetta árið. Og ég þurfti að ljúga mig útúr þessum aðstæðum með því að benda á að hún hefði farið mannavillt og benti á einhvern mann sem stóð þarna í sakleysi sínu í nokkurra metra fjarlægð.
Eftir það þá hætti þessi brandari snarlega að vera fyndinn og ég ákvað bara að reyna gera þetta á eigin forsendum….. ekki með hjálp 20 ölvaðra hr-inga.
yes.. ég fékk meira að segja að vera ein af þeim skrautlegu haha.. ég vona að ég hafi nú ekki meitt þig haha :)