2 dagar í Maraþon
Posted on August 16, 2007 in Blog
Núna eru einungis 2 dagar í Maraþon og seinasta æfingin á morgun enda verður brjálað að gera á föstudaginn og veitir ekki af að hvíla líkaman aðeins fyrir átökin. Eins og flestir vita ætla ég að vakna sjúklega feskur á laugardagsmorgun, skella mér í skóna, þrusast niður í bæ, skella iPod í eyrað og hlaupa 42km þakka þér fyrir. Ætla ekki að kála mér svona í fyrsta maraþoninu þannig að ég verð mjög sáttur ef ég fer þetta á fjórum tímum og allt undir því er bara bónus.
Eins og nær allir þáttakendur maraþonsins ætla ég að hlaupa til styrktar góðgerðarmálsefnis. Ég hef valið að hlaupa til styrktar Krabbameins félagsins og ef þú hefur áhuga á að heita á mig þá renna þau áheiti óskipt til Krabbameins félagsins:
Related posts from the blog:




