28 days later (pun intended)
Posted on Oct 30, 2006 in BlogHa nú er sko komið að því engin drykkja í fjórar vikur (28 daga allavegana) þannig að auðvitað varð maður að fara út með stíl og það var djammað báða dagana þessa helgi eins og næstum alltaf. Á föstudeginum var áfengislaus vísindaferð í Össur sem enginn hafði trú á að ég myndi mæta í :P En ég fór og það var ágætt en svoldið langt að hlusta á ræðurnar. Eftir Össur fórum við niður á Pravda þar sem Pragma hélt ágætt bjórkvöld með Quiznos og snakki sem meðlæti. Ég var þar í smá stund og hélt svo á Sólon þar sem Apple var búið að taka frá alla efri hæðina og það var fínt að fá all you want free á barnum. Svo var djammað stutt því ég vildi ekki sofa yfir mig um morguninn.
Á laugardeginum var það vinnan eins og venjulega en eftir hana tókum við okkur saman nokkrir strákarnir úr fjármálaverkfræðinni og skelltum okkur til Marra og grilluðum hrefnu hvalkjöt og fleira. Hrefnan var frábær á bragðið og kom öllum á óvart. Eftir að við fengum okkur þó nokkuð að drekka enduðum við niðrí bæ seint og síðar meir. Byrjuðum að kíkja á Q-Bar sem “drap” náttúrulega Ara og manni leið eins og svikara að fara á en maður lét sig hafa það. Kíkti svo eitthvað aðeins á Hverfis og fór svo heim.
Niðurstaða seinustu djammhelgarinnar í bili: Hrefnukjöt er mjög gott og ég á aldrei nokkurtíman eftir að skilja kvennmenn.
Related posts from the blog:
- Last few days of summer
- 30 hour days?
- Ekkert meira “bull” (pun intended)
- Til hamingju mamma
- Fyrsta helgin afstaðin





