Ég ætti svo að vera að læra…
Posted on Nov 11, 2006 in Blog
Ah ég veit ekki alveg hvað maður er að pæla að vera vinna svona rétt fyrir próf. Það er frekar fáranleg tilfinning að vera að afgreiða einhverja iMac vélar í staðinn fyrir að reikna eins og múkki. Svo er náttúrulega ekkert að gera fyrri hluta laugardags í þessu svelli úti þannig að tíminn líður gíkantískt hægt…
Ég held í alvörunni að það sé eitthvað samsæri að hafa frían bjór allar helgar sem ég er ekki að drekka. Í gær var kynntur Víking jólabjór á nokkrum stöðum og var hann frír fyrir lang þyrsta íslendinga, ekkert verra en að vera læra rétt uppúr miðnætti og fá símhringingar frá félögunum að drekka jólabjór… Í kvöld ætlar Bjöggi svo að halda uppá afmæli Maclantic og þar er líka frír bjór en nei það skal sko vera stærðfræðin aftur í kvöld en djöfull langar mig í jólabjór….
Annars er ég ánæður með drengina á Xinu núna:
“Dagurinn í dag er tileinkaður Starfsmönnum X-ins 977 fyrir að hætta við Ásgeir Kolbeins “look a like” keppnina. Við á X-inu erum alveg til í að sparka í liggjandi mann. Ef hann á það skilið. En aldrei nokkurn tíma munum við leggjast svo lágt að ráðast á þroskahefta og þess vegna ákvaðum við að sleppa Ásgeirs Kolbeins “look a like ” keppninni. “
Dáldið mikið hatur í gangi en kallinn á það skilið hann er hund leiðinlegur og verri í eigin persónu heldur en í sjónvarpinu.
Related posts from the blog:
- Í skólanum er skemmtilegt að vera…..
- Gleðileg jól
- Casino Royale
- Internet Explorer minn rass
- Stærðfræði helgin mikla





