Versta ball í geimi

Próflokadjammið á föstudaginn var aldeilis vel heppnað. Djammið var haldið á Hverfisbarnum þar sem boðið var uppá frían bjór á skrílinn frá klukkan níu til eitt og svo eitthvað af skotum líka þannig að á nógu var að taka. Eftir veruna á Hverfis skelltum við okkur á Próflokaball pose.is á Broadway en það var því miður alveg hræðileg stemming fyrir þessu balli og Broadway sennilega ekki sést jafn tómur…. það var lítil stemming á ballinu þannig að farið var fljótt aftur niður í bæ og djammað yfir sig.


Restin af myndunum
Myndirnar sem Maggi tók

Á laugardeginum kíkti ég með Bjössa til Gulla að sötra. Við kíktum á einhver disk með dávaldinu Sailesh sem Gulli hafði fengið gefins og shit hvað greyið fólki sem var í þessum extreme show lennti ílla í því, ekki mjög fallega gert. Fólk var eitthvað að riðlast á stólum og strippa og læti. Drukkið var til að fríska sig við þannig að drykkur kvöldsins var jagermeister í cult sem kom skemmtilega á óvart. Frá Gulla röltum við svo niður í bæ eftir að Bjöggi og Dabbi kíktu við og svo var farið að vinna í að verða meira fullir eins og hefð er fyrir.


Related posts from the blog: