Boogie Woogie
Posted on September 19, 2007 in Blog
Samkvæmt tilskipun frá Hörpu Þöll ber mér að blogga þannig að ég verð víst að framfylgja því. Eins og alltaf er nóg að gera en samt tekst manni alltaf að bæta einhverju við. Það nýjasta var í dag þegar ég fór með Ella, Hildi og Svövu í Boogie Woogie dans kennslu sem er svona swing dans. Þrátt fyrir að vera með strengi eftir að hafa komið beint af Boot Camp æfingu gekk mér bara vel þó ég segi sjálfur frá en það voru sirka þrisvar sinnum fleiri stelpur en strákar þarna þannig að þetta var svoldið maus. Það er svoldið erfitt að vera að skipta um dansfélaga hægri vinstri og þurfa að læra inná taktana hjá viðkomandi og að ég tala nú ekki um að fullt af þessum stelpum voru hrikalega slappar í dansinum :P Lærðu dansararnir voru samt verstir því þeir voru með svo súra auka takta sem rugluðu mann bara í rýminu og þær reyndu alltaf að stýra dansinum. Spurning hvort maður haldi áfram í þessu, þetta er gaman en bara spurning hvort maður hafi tíma, nóg annað að gera. Í næstu viku er planið að prufa sjósund með Gísla þannig að maður verður að sjá til hvort maður hafi tíma í þetta.
Fyrst ég leyfði mér að skrópa á lærdómnum og fara bara í dans kennslu ætlaði ég að vera geðveikt duglegur að læra í kvöld en niðurstaða kvöldsins er klárlega að Tímaraðagreining er versta fag í heimi og það er ekki hægt að skilja né einbeita sér að þessum viðbjóði! Ég tók bara svona netpróf í staðinn og staðfesti vitneskjum mína um að ég er akward nörd enn einu sinni:
Síðan var Elli nátla í ruglinu eins og venjulega og þar sem Foosball er nýjasta æðið hjá nemendum HR þessa önnina hafði hann uppá þessu líka rosalega video með FOOSBALL TRICKS!!!:
Svona svo ég taki smá recap þá voru seinustu helgar basically svona:
31. ágúst og 1. september: Vísó í Ístak og partý á Rex og Hverfis á föstudegi, horbjóðslegt kvöld sem ég hata og vill ekki að hafi verið til.
Á laugardeginum var svo rómó dinner á Kínahofinu með Bjössa, við vorum eins og samkynhneigt par og fengum rosalega mikið af augnarráðum. Fyndið hvað fólk er sama um tvo karlmenn saman á Stælnum eða BK en á Kínastað hljóta þeir að vera gay par. Eftir mat var svo kíkt á partý hjá Ella og tekið drykkjuspil og fleira og svo stefnt niður í bæ og syndir föstudagsins gerðar upp og bættar.
7. og 8. september: Á föstudeginum voru haldin bekkjarpartý í massavís í verkfræðinni en ég og nokkrir strákar ákváðum að fara til Ella þar sem við grilluðum dýrindis kjúkling og læti. Svo var bjórkvöld og læti á Hverfis. Á laugardeginum var svo innflutnings partý hjá Reyni og Rebekku og svo Vegamót eins og svo oft áður.
14. og 15. september: Á föstudeginum var áfengislaus vísindaferð í Seðlabankan og svo heljarinnar partý með Lögréttu. Ég flúði hinsvegar út að borða með Apple starfsmönnum á Apótekinu og drakk fullt af Tonic með engu (til að fólk héldi að ég væri í G&T og væri ekki með væl um að láta mig drekka). Maggi einsetti sér að drekka bara eitthvað sem átti að vinna 100% gegn þynnku allt kvöldið (en varð sót þunnur í vinnunni á Laugardeginum :P) Eftir matinn, fór ég aftur í partýið hjá Pragma og Lögréttu enn edrú en gafst upp á svona korteri og skilaði af mér bílnum. Eftir það var tekið hrikalega á því og endir kvöldsins var ekki jákvæður.
Á laugardeginum hélt ég svo austur fyrir fjall eftir vinnu á stefnumótunarferð stúdentafélags og nemendafélag HR. Ákvað að vera bara edrú og stóð við það. Það var samt farið í drykkjuleiki (ég með Magic, harður!) og pottinn í 4/5 tíma samfleygt. Ég og Elli keyrðum svo aftur í bæinn um nóttina, komum við á Selfossi og fengum okkur sveittan mat. Kíktum svo aðeins í bæinn í Reykjavíkinni með Ella á bloody bol og stefnandi á bullandi lungnabólgu. Við hittum svo Öglu, Hildi og Laufey og ætluðum á einhvern stað en það var svo mökk pakkað og leiðinlegar raðir að við fórum bara á Nonna og svo keyrði ég liðið heim.
Seinast en ekki sýst eru svo komnar myndir frá Lögréttu úr Tuborg útilegunni, sumar ansi skemmtilegar þar á ferð, t.d. þessi af mér, Guðjóni og Jakob með staupflöskurnar mundaðar:
Related posts from the blog:







ánægð með bloggið ;o)
Vel gert Hansi.. VEL GERT!