Afmæli og Eurovision

Á laugardaginn seinasta skellti ég mér í afmæli hjá Örvari og Helga (Wong) sem var að sjálfsögðu líka Eurovision partý með öllu tilheyrandi húllum hæ. Ég kom víst frekar í seinni kanntinum á staðinn því ég var svo lengi að pakka inn gjöfunum en kassarnir voru aðeins ýktir á stærð:

Drengirnir voru mjög ánægðir með gjafirnar en Örvari gaf ég eitt stykki nærbuxur með mynd af Bingó genginu og Helga gaf ég vígalegt sverð og superman kall.

Í partýinu var mikið húllum hæ yfir Eurovision og kröftug keppni í gangi sem að Hrund vann glæsilegan og vel útilátinn sigur á. Sá sigur skilaði henni einnig því að vera svoldið mikið í því en lifði þó af. Sigur hennar kom til því hún hlaut Rússland sem sitt land í keppninni og bar að drekka vel í hvert skipti sem þeir fengu 12 stig en eins og allir vita vonandi unnu Rússar sigur úr bítum, sem kom svosem ekki á óvart enda með alveg fínt lag þannig séð og geðveika skauta senu :P

Bingó gengið samdi svo fallegt lag handa drengjunum og flutti við mikinn fögnuð viðstaddra:

Hér er eitthvað af myndum frá kvöldinu:


Restin af myndunum


Related posts from the blog:


1 Comment

  1. Snillingur!