Afmælið hans Ella

Tókst loksins að finna SD kortið út myndavélinni þannig að ég gat skellt inn myndum frá surprise afmælinu hans Ella. Elli kallinn ætlaði að vera rosalega sniðugur seinustu helgi og efna til afmælis matarhitting á Vegamótum en drengirnir höfðu aðrar hugmyndir. Elli var einn látinn mæta niðrá Vegamót í rólegheitum og chilla einsamall, síðan þegar hann var búinn að bíða í sirka hálftíma var hann sóttur af leigubílstjóra og skutlað í grill partý hjá Jónasi þar sem alvöru afmælið var. Elli var augljóslega hissa en ánægður þrátt fyrir allt.

Ég ákvað að vera pinku frumlegur í þetta skiptið og gaf Ella kallinum púsluspil af sjálfum sér uppá grínið:

Kvöldið heppnaðist mjög vel og allir voru ánægðir, hér eru svo eitthvað af myndum allar teknar með brotinn skjá þótt ótrúlegt sé!


Related posts from the blog: