Afslöppun

Jæja tveir dagar af atvinnumanna chilli, ekki búið að gera neitt annað en slappa af, glápa á video og spila tölvuleiki. Mjög skrýtin tilfinning í að fara útí svona aðgerðaleysi enda maður varsla búinn að hafa tíma uppá síðkastið fyrir almennilega afslöppun, sérstaklega þar sem maður leyfir sér að spila tölvuleiki.

Á laugardaginn var hittingur með gamla bekknum úr versló heima hjá Einar. Það var gaman að hitta liðið aftur enda orðið frekar langt síðan seinast. Eftir rólegt chill hjá Einari var farið niðrí bæ á Hverfis, það var nú ekkert mjög margir niðrí bæ en samt smá fólk og ég fékk Jack í Drambuie sem var mjög góður bónus.

Á gamlársdag var svo veisla hjá okkur, vorum alveg sautján í mat og örugglega matur fyrir þrjátíu þannig að allir átu vel og lengi. Eftir matinn var svo skyldu áhorfið eins og venjulega, fréttaannáll stöðvar 2, rúv og svo að sjálfsögðu skaupið sem var lala en mjög gleymanlegt. Eftir þetta var að sjálfsögðu kíkt uppí holt þar sem allt var troðið af fólki að glápa á flugelda en því að ólíkt venjulega var ekki mikill vindur þá kom það fyrir að allt holtið varð mökk fullt af reyk þannig að það hætti fljótt að sjást nokkur skapaður hlutur. Svo var náttúrulega farið aftur heim og skálað eins og hefð gerir ráð fyrir. Þegar öll plesentry voru búin fór ég með Bjössa og Snorra á grímuball og það var last minute hugdetta að skella sér í hvíta jakkan, redda sér skammbyssu og martíní glasi og fara sem James Bond. Búningurinn gekk upp en drykkjar valið var hörmung, átti ekkert eftir nema Tópas þannig að það varð fyrir valinu sem eru og verða sennilega mistök þessa árs þó það sé bara rétt byrjað… ég ákvað að það væri geðveikt kúl að drekka Tópasinn beint úr martíní glasinu og fyllti það sem fór náttúrulega beint í hausinn á mér og ég varð blekaður á nokkrum mínútum. Eftir stutta veru þarna fór ég svo með Adda, Sigurjóni og japana sem ég man ekki hvað heitir niðrí bæ þar sem farið var á ellefuna og fleiri staði í þvílíku rugli, hef sjaldan verið svona blekaður. Endaði svo á að skríða uppí leigara um fimm, hálf sex leitið. Þegar ég kom heim voru Jonni, Kata, Reynir og Konný enn hér á einhverju spjalli við pabba og mömmu, ótrúlegt hvað þetta fólk getur talað endalaust, ég settist aðeins hjá þeim en hafði fljótlega rænu á að það væri best að fara bara að sofa.

Myndir frá 30. og 31. des

Á nýársdag var síðan farið á fætur uppúr tvö og skellt sér beinustu leyð fyrir framan tölvurnar að glápa á video og spila NWN2 (og svo er sagt að karlmenn geti ekki multitaskað). Ótrúlegast fannst mér að ég var ekki vitund eftir mig þrátt fyrir hrikalega meðferð á lifrinni kvöldið áður en ég held ég gefi greyinu frí næstu helgi enda búið að vera tvær þriggja daga helgar í röð og svo London þarnæstu helgi!!!

Á morgun er þetta “frí” víst búið og blákaldur veruleikinn tekur við þannig að það er aftur í vinnuna og átakið heldur áfram, gaman að sjá hvernig ógeðslegt magn af áfengi og óhóflegt át hefur farið með mann :P


Related posts from the blog: