Ahhhh það er svo mikið að gera…
Posted on Jul 25, 2007 in BlogÉg held ég viti ekki lengur hvað snýr upp né niður í mínu litla lífi lengur. Það er svo mikið að gera í öllu núna að það er eiginlega fáranlegt. Ég er náttúrulega að vinna alla daga hjá Arion, svo er ég að taka auka vaktir eftir vinnu hjá Apple því það er svo margir í sumarfríi þar. Síðan er allt brjálað að gera í þessu blessaða nemendafélagi, samningar, skipulag, umbrot og seinast en ekki sýst allar þessar æfingar uppá hvern einasta dag. Allt þetta rugl er svo búið að gera mig háðan dagatali og e-mail sambandi 24/7 og þar sem ég er með eina borðvél heima, eina ferðavél á flakkið, eins vinnuvél í Arion og eina vinnuvél í Apple varð það smá vesen. Þannig að ég er búinn að færa öll netföng yfir imap þannig að ég sé með sama póstinn í öllum tölvum og svo er hver stund dagsins skipulögð í iCal (atburðir í miðjunni, TO-DO listinn hægra megin):

Það er náttúrulega ekki nóg og því er ég búinn að setja upp sync við Google Calendar og er með dagatalið líka í öllum vélum:

Ég er klárlega búinn að missa af mest öllu sumrinu og ekki búinn að hafa tíma til að gera nema brota brot af því sem mig langaði að gera í sumar… Allavegana nóg af bloody væli maður ákvað að gera þetta allt og verður bara að taka því eins og maður.
Helgin var eins og flestar aðrar alveg ágætar því maður fékk smá tíma til að pústa, tja allavegana laugardagarnir. Eyddi seinasta föstudegi í að brjóta bækling fyrir nemendafélagið þannig að það var ekkert djamm það kvöldið. Eyddi svo mestum laugardeginum í leti og vídeogláp en tók mig þó saman í andlitinu um fimm leitið og tók hálft maraþon til að sjá hvernig mér væri að ganga að bæta tíman minn. Fór þetta á 1 klst og 55 mín þannig að þetta er allt að stefna í rétta átt, ef ég næ að bæta mig um svona 10 mín þá er ég ýkt ánægður. Eftir hlaupið kíkti ég svo til Ella þar sem allt var á rúi og stúi (meira en venjulega). Palli var þarna líka og svo komu Maggi, Jónas og indverjin Rohit frá Svíþjóð. Ég fékk að heyra fallegar sögur af afdrifum Bingó gengisins frá föstudeginum þar sem þeir mössuðu bingó í Vinabæ og cröshuðu girls-only afmælið hjá Kristínu Rut eins og hetjur (meira um það á Bingó blogginu). Eftir nokkrar umferðir af Irish drinking song héldum við svo til Gísla formanns lögréttu í partý þar sem var allt var flæðandi í áfengi og föngulegu fólki, aðalega HRingum. Fór svo rétt fyrir þrjú niður í bæ með Úlla og Agga og missti mig þar í einhverri vitleysu eins og svo oft áður en náði mér sem betur fer niður og var orðinn ágætur þegar ég hélt heim.
Related posts from the blog:
- Allt of mikið að gera
- Blogmenning og það sem finnst
- Maraþon
- Árshátíð Pragma og Tvíundar 2007
- Vantar að kaupa meira minni





