Airwaves 2006
Posted on October 23, 2006 in Blog
Airwaves er búinn en vá hvað það er búið að vera mikil snilld að fara á þessa hátíð og ég sé að ég hefði átt að fara í fyrra. Hátíðin hófst með sprengju á miðvikudaginn og kláraðist í dag.
Fyrsti í Airwaves
Á miðvikudeginum byrjuðum við Helgi á að kíkja á Gaukinn og vá hvað það var ógeðslega bloody troðið þar. Við sáum ekkert af Telepathetics, heyrðum bara í þeim því að við komumst ekki einu sinni inn í salinn fyrir troðning, á eftir Telepathetics komu svo Noise sem eru ekki í uppáhaldi hjá mér þannig að við fórum upp á efrihæðina og ætuluðum að bíða og sjá We are Scientists en svo komu Héðinn og Andri og við ákváðum að skella okkur frekar á Ultra Mega Technobandið Stefán sem var algjör snilld, söngvarinn er örugglega ein mesta brjálæðis framleiðsla á stemmingu sem ég hef á ævinni séð. Eftir Stefán hlugleiddum við hvort við myndum reyna að fara á Dikta en miðað við hvernig var á Telepathetics ákváðum við að fara frekar á Grand Rock og kíkja á Weapons, þeir eru því miður hrikalegir, söngvarinn syngur ekki vel og er ekki nógu góður á gítar, bassaleikarinn var heldur ekkert spes, trommarinn var samt ágætur.
Annar í Airwaves
Á fimmtudaginn skelltum ég og Bjössi okkur á Listasafnið og náðum endanum á Hot Club de Paris sem voru ágætir. Næst á eftir þeim voru Tilly and the Wall sem nýttu stepdans í stað trommusláttar en voru samt ekkert spes. Eftir tvö lög vorum við komnir með nóg af steppdönsurunum og skelltum okkur á Gaukinnn þar sem strákarnir voru búnir að planta sér í einn básinn þannig að við fengum sæti sem var nett. Á Gauknum sáum við fyrst My Summer as a Salvation Soldier sem voru ömulegir, Eberg sem komu virkilega á óvart og spennandi. Svo kom að aðal númerum kvöldsins, Datarock og The Whitest Boy Alive sem voru snilld, báðar mjög skemmtilegar, líka ótrúlega fyndið að söngvarinn í Whitest Boy lítur mjög svipað út og Sæmundur stærðfræðikennari.
Þriðji í Airwaves
Á föstudeginum byrjuðum við Helgi á að kíkja í partý hjá útskriftaráðum viðskiptadeildar og lagadeildar í Ásbyrgi. Við vorum frekar snemma í því og enginn mættur en við fengum okkur nokkra bjóra og þegar Andri, Héðinn og Hilmar komu skelltum við okkur niður á Gauk og sáum Mammút, Jeff Who og Wolf Parade sem voru öll frábær eftir Wolf Parade var svo bara djammað aðeins.
Fjórði í Airwaves
Á laugardeginum vorum ég, Héðinn og Helgi allt of lengi niðrí skóla að klára tölfræði verkefni og ákváðum að taka samt pásu og rölta í ríkið og kláruðum svo verkefnið með bjór við hönd sem gerði það þolanlegra. Eftir að við kláruðum verkefnið skellti ég mér heim í sturtu og Hildur skutlaði svo mér og Helga niðrí bæ, við kíktu fyrst í smá stund til Möggu vinkonu Hildar og vorum eiginlega fáranlega lengi þannig að þegar við komum loksins niðrí bæ voru Brazillian Girls næstum byrjuð þannig að við fórum beint í röð og komumst inn á hálftíma, það var mökk troðið á Nasa en frábær stemming. Á eftir Brazillian Girls var það svo Hermigervill og seinast en ekki síst voru Dr. Mister & Mr. Handsome. Eftir Nasa fórum við svo á Pravda og djömmuðum eitthvað smá. Sé reyndar aðeins eftir að hafa misst af Kaiser Chiefs en hefði heldur ekki vilja missa af Brazillian Girls.
En núna er þessi frábæra hátíð afstaðin og hverrsdagsleikinn tekin við en ég fer pott þétt aftur næsta ár.

Related posts from the blog:





Það þýðir víst ekkert að vera að sjá eftir einhverjum böndum á svona hátíðum, annars eru þær ekkert nema tóm eftirsjá.