Allt of mikið að gera

Úfff, ég er einhvernvegin farinn að hafa það á tilfinningunni að þessi önn eigi eftir að vera algert hell. Klukkan er orðin tvö um nótt, búinn að vera hér í skólanum síðan klukkan átta í morgun, nema ég skaust rétt í ræktina um kvöldmata leitið. Ég var að enda við að klára það sem ég gat í áðgerðargreiningu þar sem verið er að “kenna” manni enn eitt forritunarmálið, shippy. Á undan því var svo stærðfræðin skemmtilega sem ekki nokkur maður skildi, það er rosalega uppörvandi svona í byrjun annarinnar. Á morgun heldur gamanið síðan áfram af fullum krafti, 2,5% skil í Tölfræði á fimtudaginn og 10% skil í Financial Computer Techniques and Applications á föstudaginn og ég er ekki einusinni búinn að opna bókina hvað þá lesa hana…

Hefði samt getað verið duglegri að læra um helgina og komið mér á skrið, enda ætlaði ég sko ekki að gera neitt skemmtilegt, bara læra. Það gekk að sjálfsögðu ekki upp. Á föstudaginn var farið eftir vinnu til Bjögga og Möggu í mat með Berglindi og Kára og svo farið í að glápa á videoið sem var tekið upp í London fram á nótt. Videoið var svona 5-6 fyndin klipp og ótrúlega ótrúlega mikið af löngum senum þar sem augljóslega blindfull manneskja var að taka video af engu. Öfunda ekki þann sem þarf að klippa eitthvað sómasamlegt úr þessu rugli.

Á laugardaginn ákváðum Bjössi og ég svo að slá öllu í kæruleysi og hittumst heima hjá mér fengum okkur slatta af bjór og svo yndið mitt Jack í Drambuie, yummy, eins gott að Drambuieið fæst enn í fríhöfninni :) Eftir gott spjall og drykkju skelltum við okkur niðrí bæ og hittum Snorra og fleiri og svo var smá djamm eftir það.

Það er alveg spurning hvort maður fari að slaka aðeins á og nota helgarnar til að komast á gott skrif í náminu en ég hreinlega nenni því ekki enda þarf maður alveg að fá smá púst frá skólanum og vinnunni. Það er samt svoldið crazy hvað er búið að skipuleggja mikið á næstunni, vísó og staffadjamm á föstudaginn, grímuball þar næst, svo nokkrar vísó, afmæli Pragma, árshátíð, kosningar+kosningavaka og margt fleira.

Sé ekki fram á að sofa fyrr en í Maí. Ætla samt að reyna að finna rúmið mitt ef ég man enn hvernig það lítur út…


Related posts from the blog:

Leave a Reply