Alveg að verða búinn í prófum
Posted on Apr 17, 2007 in BlogNúna eru einungis 6 klukkustundir og 32 mínútur í próflok og allt að koma heim og saman. Aðgerðagreining fór létt í gegn, Stærðfræði IV var hell og endaði ég á að falla á tíma og svo var Tölfræði II í gær sem var ótrúlega mikið ósamræmi í prófinu og ég féll á tíma (var jafn lengi að reikna dæmi sem hafði 9% gildi og dæmi sem hafði 23% gildi… wtf). Núna er hinsvegar að styttast óðfluga í seinasta prófið sem er Financial Computer Techniques and Applications… Ekki nóg með að hafa orðið illa úti í þessum blessuðu prófum þá er ég líka búinn að vera fárveikur síðan á sunnudags morgun þannig að það hefur verið mjög erfitt að læra. Maður lætur sig samt hafa það og svaf bara slatt í fyrra nótt og í nótt. Fór reyndar að sofa klukkan 20 í gær og vaknaði um 2 og mættur að læra 2:30 til 14 þegar prófið byrjar. Held ég sé á góðu róli með að ná að renna yfir allt efnið á þeim tíma sem hlýtur að teljast mjög gott. Svo er bara Thule eftir próf, kanski djamm annað hvöld og svo náttla crazyness á föstudaginn:

Related posts from the blog:





