Annáll og áramótaheit
Posted on Jan 4, 2007 in BlogÉg var hvattur til að skrifa smá annál um allt draslið sem maður er búinn að vesenast í á árinu, fyrst maður nennir þessu bloggi á annað borð.
Árið hófst barast ágætlega og var fyrstu dögunum eytt með Söru sem var einmitt á leiðinni út til Danmörku í nám. Hún yfirgaf klakann 4. janúar og á meðan var maður að sjálfsögðu á fullu í vinnu í Apple og við fluttum einmitt á Laugarveg 182 i Kauphallarhúsið um þetta leyti.
Janúar var líka seinasta skipti sem ég fór í átak í ræktinni en þá til að þyngja mig og auka vövðamassa ólíkt öllu sem ég hafði gert á undan því. Átakið entist stutt en skyldi smá eftir sig.
Í fyrstu mánuðum ársins var maður kominn á fullt í skólanum og það var auðvitað mikið djamm og þar helst stofnun Pragma og sumarbústaðaferð í tilefni því.
Einnig var á þessum tíma frábærar skemmtanir eins og árshátíð HR og kosningarnar í stjórn Pragma þar sem minn fór einmitt inn sem ritari.
í apríl voru að sjálfsögðu próf og það var sennilega undarlegasta prófatörn sem ég hef upplifað enda var farið beint út drykkju eftir öll próf nema fyrsta… það er náttúrulega bara rugl, það var báða daga eftir Fjármálaverkfræði, allan daginn á miðvikudeginum eftir Kerfisgreiningu og svo náttúrulega geðveikt próflokadjamm eftir Stærðfræði.
Í apríl hætti ég líka með Söru, því mér fannst við ekki eiga samleið lengur og komst að því að ég ætla ekki að prufa long distance relationships aftur. Maður er víst búinn að vera einsamall síðan, sem er kanski fyrir bestu.
Maí var svo uppfullur af allskonar sprelli og öðru próflokadjammi en einnig goodie reunion hjá ”85 árgangnum úr Þingó.
Júní var uppfullur af vinnu og síðan frábærri ferð norður á Halldórsstaði.
Júlí mánuður hófst á magnaðri ferð í Hallgeirsey þar sem heldur betur var djammað, djúsað og klekkt á útlendingum. Einnig fékk ég frábæru glösin mín í júlí þó eitthvað hafi minnkað í flotanum þannig að kanski maður fylli á fyrir sumarið.
Ágúst hóst svo af mikilli geðveiki þar sem við strákarnir fórum í fallhlífastökk þar sem Adda tókst glæsilega að skella á gaddavír og ég skall hrikalega í jörðina því ég gleymdi að flapsa (bremsa).
Einungis tveimur dögum eftir fallhlífastökkið var svo stefnan tekin á þjóðhátíð sem er án efa það skemmtilegast sem ég hef gert á minni ævi hingað til og ekki spurning að maður fari aftur á næsta ári. Skil ekki hvað fólk er að fara í einhverjar drykkjuferðir til sólarlanda, eyjar eru svo miklu betri.
Daginn eftir komuna úr eyjum var hoppað uppí flugvél og farið til London, þar sem ég varð fyrir þeirri undarlegur uppgötvun að Bretar drekka almennt bara til eitt á nóttinni….
Ágúst mánuður var svo kláraður af með snildarinnar Tuborg útilegu og vikuna eftir það hin stórskemmtilega óvissuferð Pragma. Mánuðurinn var svo kláraður með 21. árs afmælinu.
September var einstaklega generískur djamm mánuður en þá fyrst fór ég að pæla í hvað væri í raun of mikið djamm. Eftir þrettán samfleygar helgar af drykkju báða daga var reynt að minnka við sem en það mistókst í þetta skiptið.
Það sem stóð uppúr í október var án efa hin frábæra Októberfest þar sem ærlega var skrallað með bjórinn og svo auðvitað AirWaves sem voru teknir með trompi.
Í lok október var síðan farið í fjögra vikna drykkjupásu í anda Héðins og Helga sem stóðst alveg þrátt fyrir fjölmargar freystingar. Pásunni lauk svo með brjáluðu próflokadjammi.
Desember markaði svo tímamót þar sem ég var kominn með 45 einingar og þar með hálfnaður með BSinn. Annars var hann bara fullur af drykkju, kaupglöðum íslendingum og hátíð ljós og friðar.
Frábært ár í alla staði, sleppti reyndar fullt úr, öll afmæli, generísk partý og þannig en það skiptir kanski minna máli :P
Það er víst viðeigandi að gera eitthvað svona áramóta uppgjör og strengja smá áramótaheit. Efitr að hafa farið í gegnum annálinn er maður kominn með nokkrar hugmyndir í viðbót við það sem maður hafði þegar lofað sjálfum sér að bæta en ólíkt fyrri skiptum ætla ég að punkta þessi heiti hjá mér og checka á hvernig gengur í hverjum mánuði þangað til þau eru uppfyllt.
Sennilega best að byrja á því sem auðvellt er að uppfylla og enda á því erfiða.
Fyrst maður er í átaki er ágætt að setja sér smá takmörk svo maður sé ekki bara að þessu út í loftið:
#1 Fara niður í 74 kíló fyrir vor
#2 Minnka fituprósentu úr 13% í 11%
#3 Auka vövðamassa um 15%
Þetta ætti allt að vera geranlegt með nægum viljastyrk og með því að gefa sér smá tíma.
Næst er komið að því erfiða sem snýr einmitt að undirstöðu atriði ársins, ofsadrykkju. Eins og ótrúlega margir þjáist ég að krónískri feimni og hvað gerir maður þá til að reyna að lífga uppá auka sjálfsöryggið og talhæfnina annað en að drekka. Málið er að þetta hefur verið valdur að því að ég er allt of oft ofsa drukkinn þar sem ég geri mig að fífli eða eitthvað verra og lendi í minnisleysi. Núna er hinsvegar málið að klára þetta mál í eitt skipti fyrir öll og verður það gert í London þar næstu helgi. Stefnan er semsagt að nýta helgina í drykkju og í þetta skiptið kemur það í ljós hvort ég get stýrt henni nægilega vel ef það tekst ekki og lendi í minnisleysi og rugli þá heiti ég því að HÆTTA AÐ DREKKA 15. JANÚAR.
#4 Læra að drekka eða hætta því 15. janúar
Seinast er að sjálfsögðu það lang lang erfiðasta en það skal lagast á þessu ári og hana nú. Í gegnum tíðina hef ég að sjálsögðu alltaf verið mjög feiminn kringum fólk sem ég þekki ekki vel og þá sérstaklega stelpur. Einhver sagði mér að þetta væri háð því að setja fólk á hærri stall en maður ályktar sjálfan sig vera á og er stefnan núna að henda öllum stöllum og koma öllum í kringum sig á sama level:
#5 Hætta að vera svona fucking feiminn
Svona í lokin fylgir smá nördagrín um áramótaheiti:
Stöðuyfirlit Átaks:
Dagur 1 – 27/12, morgun – 80,3 kg
Dagur 2 – 28/12, kvöld – 78,4 kg
Dagur 3 – 29/12, morgun – 77,7kg
Dagur 4 – 30/12, kvöld – 77,6 kg
————–Frí yfir áramót———–
Dagur 5 – 3/1, kvöld – 77,5 kg
Related posts from the blog:
- Prófa rugl…
- Átak hefst – Dagur 1
- Laugardagar eru og verða skull
- Ahhhh það er svo mikið að gera…
- Drauma rugl






