Átak – Dagur 2

Jesús minn eini og jólasveinnin íslendingar eru bloody geðveikir… það var brjálað að gera í dag í vinnunni. Ég komst ekkert í mat og var bara að skófla í mig skyri milli kúnna, það var röð við kassan í þrjá klukkutíma samfleygt, maður verður alveg búinn eftir svona geðveiki. Held að ég hafi persónulega selt fyrir allavegana 2,4 milljónir og lá bókstaflega örmagna í lok dags. En maður harkaði af sér og skellti sér nú samt í ræktina eftir þetta þannig að núna er ég gjörsamlega dauður en ætla samt að reyna hafa mig á lappir í fyrramálið og fara á morgunæfingu. Viktin er samt að segja mér að kallinn kann þetta sko ennþá kominn niður um nær tvö kíló á 36 tímum, verð samt að passa mig á hvað maður skrifar hérna vill ekki gefa anorexíu sjúklingum hugmyndir :P Kanski maður geti náð þessu til baka á no time, hver veit. Gaman að sjá hvernig fer á morgun.

Stöðuyfirlit :
Dagur 1 – 27/12, morgun – 80,3 kg
Dagur 2 – 28/12, kvöld – 78,4 kg


Related posts from the blog:

Leave a Reply