Átak hefst – Dagur 1
Posted on December 27, 2006 in Blog
Það er náttúrulega ekki eðlilegt hvað maður er búinn að borða í gegnum jólin að ekki sé minnst á drukkið. Seinustu tvær vikur eru búnar að vera lágmark í ræktinni í nokkurn tíma, endalaus fyllerí og svo bara drykkja í miðri viku líka. Þegar maður er búinn að vera vinna svona allan daginn þá stefnir maður fljótt í skyndibitan enda eina sem er á boðstólnum og undanfarið er það búið að vera bæði hádegis og kvöld matur sem er náttúrulega rugl enda ekkert þess í milli annað en jólakökur, nammi og sætindi. Svo þorir maður varla að minnast á reykta og salta kjötið og meðlætið. Allt þetta saman er búið að vera þess valdandi að maður er búinn að bæta svoldið á sig en maður leyfir sér það enda jól. Þegar ég mældi mig seinast fyrir þetta rugl var ég 77,5kg en þegar ég mældi mig í morgun var ég 80,3kg sem er all mikið af því góða. Þess vegna ætla ég að stefna á smá átak núna og sjá hvað tekur langan tíma að taka svona af sér ef það tók 13 daga að bæta því á sig. Þannig að nú er það bara harkan sex með old skool prótein mataræði og bara holl kolvetni, engin skyndibiti, nammi eða kökur þar til þetta er komið af. Held ég leyfi mér samt að fá mér bjór (þó hann sé massíft fitandi) enda stutt í helgi og áramót :P
Stöðuyfirlit:
Dagur 1 – 27/12 – 80,3 kg
Related posts from the blog:




