Back to school special

Alltaf nóg að gera aldrei nægur tími… Jæja að sjálfsögðu er maður byrjaður í skólanum aftur og hefur ekki undan að læra, snúast fyrir nemendafélagið og klára vinnuna. Eins og mig hlakkaði rosalega til að byrja í skólanum, oh well greinarnar virðist svosem í lagi en frekar einhæfar, Stærðfræði, Tölfræði, Verðbréf og Fjárstýring. Þetta er svona eins og að vera í 2x sama faginu nema með smá breytingum, en það er svosem bara byrjunin skerst voandi í sundur fljótt. Allavegana var seinasta helgi ágæt, á föstudeginum var nýnema útilega HR og það var alveg magnað fjör þó ég hafi mætt svoldið seint og svo á laugardeginum var fordrykkur hjá Tomma, grill hjá Bjarna og svo ætlaði ég á Sálarballið en nennti ekki þannig að ég fór bara í eitthvað miðbæjar partý að hitt Óla. Það var fáranlega troðið í bænum og ég þoli ekki að vera í bænum við slíkar aðstæður og ekki nenntum við í þá ógeðslegu leigubílaröð sem var þannig að við rölltum barast heim um fjögurleitið.

Restin af myndunum úr Tuborg útilegunni

Næst á dagskrá er síðan hafa óvissuferð fyrir verkfræðinemana á föstudaginn sem er ógeðslegt fyllerí ef miðað er við seinasta ár þar sem ég kom heim á bolnum og réðs á hurðin með kredit kortum því ég hélt ég gæti opnað með þeim. Helgi lennti líka í því að ákveða að hlaupa heim úr partí í Garðabæ og týnast í Kópavogi (hann á heima í Hafnarfirði). Þannig að það verður eitthvað tjónað djamm á föstudaginn næstkomandi. Laugardagurinn fer svo í vinnu og frændsystkina partý, þannig að þetta verður örugglega fín helgi.


Related posts from the blog:


2 Comments

  1. Ertu svo ofurseldur auglýsendum að þú þarft að kalla þetta Tuborg útleigu. Skammastu þín.

  2. Þeir fóru fram á að nafninu yrði breytt því þeir borguðu partý tjaldið og gáfu 50 kassa af bjór, og nokkur bretti af snakki og gosi.