Beygluð helgi
Posted on Dec 10, 2006 in BlogÉg hef einhvernvegin á tilfinningunni að það hafi verið að segja mér að þetta hafi ekki átt að vera mín helgi. Fyrst átti að vera jólahlaðborð Pragma en við þurftum að hætta við það vegna lítillar undirtektar, þá var breytt yfir í vísó til Mentis en henni þurfti að fresta út af skorti á starfsfólki hjá Mentis. Síðan tók ég mig til og bauð stelpu sem ég er hrifinn af út en hún neitaði, veit ekki hvort það var spurning um lélega tímasetningu að minni hálfu eða skort af áhuga að hennar hálfu (afhverju fell ég alltaf fyrir stelpum sem eru “way out of my league”). Þetta allt fullvissaði mig um að þessi helgi yrði ekki góð. Sem afleiðing af þessu ákvað ég að taka bara föstudaginn undir æfingu frekar en að fara á fyllerí. Á laugardeginum var svo spáð stormi þannig að ég nennti ekki að fara neitt það kvöld heldur þannig að við Óli skelltum okkur á American Style og síðan fórum við til mín að drekka slatta af bjór, spila Playstation og glápa á B-myndir eins og Santa”s Slay enda fátt meira viðeigandi þegar það er skíta veður úti.
Annars sýnist mér allt stefna í nýja uppáhalds jólamynd fyrst að SkyONE ætlar að sýna leikna útgáfu af Hogfather eftir Terry Pratchett í næstu viku. Þetta er fyrsta Discworld bókin sem verður gerð að leikinni mynd og lýst mér bara nokkuð vel á hvernig þetta virðist hafa tekist miðað við trailerana. Myndin verður sýnd í tveimur tveggja tíma hlutum þannig að vonandi tekst að halda sem mestu af innihaldi bókarinnar til staðar:
Related posts from the blog:






