Blah blah blah

Ég er búinn að eiga iPod Nano 2. gen núna í þrjár vikur og ég hef sjaldan á ævinni verið jafn ánægður með nokkurt tæki. Á líka 4. kynslóðar venjulegan iPod sem er orðinn frekar lúinn þannig að þessi var frábær tilbreyting að fá þennan. Nýji er miklu miklu minni en samt 8GB þannig að ég get haft um 2000 lög með mér hvert sem er og það fer ekkert fyrir honum. Það besta við hann er samt að batteríið dugar loksins eitthvað af viti eða um 24 tíma þannig að ég get notað hann í sirka tvo til þrjá daga án þess að hlaða hann, enda er ég orðinn háður honum og með heyrnatólin í eyrunum daginn út og inn :)

Annars er nóg að gera á næstunni, fjárstýringar fyrirlestur á föstudaginn, stór skil í tölfræði á sunnudaginn ofl en það er allt í fínu því á föstudaginn er Októberfest, woohoooo!

Að öðrum málum, sá ég trailerinn að 300 byggt á bardaganum um Thermopylae þar sem 300 Spartverjar reyndu allt sem í sinu valdi stóð til að verjast yfirgnæfandi innrásarher Persa. Þvílík gargandi snilld, myndin er byggð á útgáfu Frank Miller af sögunni og þvílík augna nammi af sama skapi og Sin City, hlakka þvílíkt til að sjá hana:


Related posts from the blog:


2 Comments

  1. Er þessi mynd um baráttuna við laugarskarð? Leonidas og félagar?

  2. Jamm mikið rétt.