Blogmenning og það sem finnst
Posted on Dec 28, 2006 in BlogMaður velltir því stundum fyrir sér hversu lítið samfélag ísland er, það er alveg með ólíkindum hverju maður lendir stundum í sem sýnir manni hvað það er lítið. Hef stundum lennt í því að fara t.d. í partý með fólki og þekkja fleiri en sá sem dróg mig með sér og svo er nátttúrulega gamla góða “nohojs eru þau byrjuð saman, hann var með mér í skóla og hún er frænka mín….” pælingin. Allavegana það sem fékk mig til að pæla í þessu í þetta skiptið er að mér leiddist alveg major áðan þannig að ég var eitthvað að skoða fullt af blog síðum og fara frá einni í aðra (það er sennilega hægt að tengja saman net milli allra sem blogga á íslandi) og rakst allt í einu á myndir frá þjóðhátíð í sumar á tveim mismunandi síðum og þar voru myndir af mér og félögum, datt í hug að skella þeim hér til “gagns” og gamans:

(1) Alltaf gott að byrja svona á Collgate brosum og (2) fara svo yfir í Héðinn með listræna túlkun á nauðgun með greyið mig sem sýningardúkku.
(3) Ég, Maggi og einhver að íhuga hvort við getum ekki veitt eitthvað með net, Maggi ákvað að nota það á einhverja stelpu.
(4) Svo ég með eitthvað plast dýr sem ég er ekki alveg viss um hvaðan kom.
(5) Eitthvað flipp, þetta er víst hrúga af smokkum uppí mér….
(6) Ahhh bumban góða, ahhh hvað ég sakna hennar, verð að finna hana aftur eða redda nýrri
(7) Ómar Berg sleiktur :)
(8) Ég, Addi, Helgi og Gissi ótrúlega ferskir og blautir að næla okkur í Lunda í tjaldinu góða.
(9) Helgi að reyna brosa en mistakast hrikalega
(10) Múnun var víst í tísku þarna á tímabili, Helgi tekur ekki eftir neinu :P
Seinast en ekki sýst var svo video sem ég fann frá littlu systur frá frumraun bumbunar #1:
Hér með lofa ég að það verður bumba með í London ferðinni í janúar :)
Related posts from the blog:
- Ahhhh það er svo mikið að gera…
- Stærðfræði helgin mikla
- Tuttugu og eitthvað
- Fyrsta helgin afstaðin
- MY 900













