Dean Koontz Frankenstein

Maí mánuður lítur út fyrir að verða mjög spennandi fyrir Dean Koontz áhugamenn, Amazon.com áætlar að seinasta bókin í Dean Koontz’s Frankenstein seríunni komi út 6. maí og DBP ætlar að gefa út teiknimyndasögu útgáfur af öllum bókunum, fyrsta blaðið 21. maí.

Frankenstein sería Dean Koontz er sett upp sem nútímaleg uppfærsla og framhald af gömlu útgáfu Mary Shelly. Bækurnar gerast í New Orleans í nútímanum og aðalsögupersónan, skrímslið sem búið var til af Victor Frankenstein á 17. öld hefur tekið sér nafnið Deucalion. Deucalion sem fyrsta skrímslið sem Frankenstein bjó til er einstakur en hann hefur ólíkt síðari verum sem Frankenstein bjó til, sál. Einnig býr hann yfir yfirnáttúrulegum eiginleikum sem snúa að strengjafræði og getur þar með stundað nokkurskonar “teleportation” flutning milli staða. Deucalion hefur seinustu ár ferðast um heiminn og býr í upphafi bókana í Tíbersku klaustri en þegar hann fréttir af því að Frankenstein er enn á lífi ákveður hann að leita hann uppi.

Aðrar aðalpersónur bókana eru rannsóknarlögreglurnar Carson O’Connor og Michael Maddison ásamt Victor Frankenstein sem gengur núna undir nafninu Victor Helios. Helios hefur haldið sér lifandi í gegnum árin með því að halda áfram rannsóknum sínum á mannslíkanum og hefur haldið eigin líkamshlutum við og búið til fjöldann allan af einstaklingum sem hann stefnir á að nota til að taka yfir heiminn með hægt og rólega með því að skipta út mannfólkinu fyrir “nýja fólkið”.

Frankenstein bækurnar og eru frábær lesning og höfða til víðs hóp lesenda því hér á ferðinni reifari með stórskemmtilegum vísindaskáldsögu söguþræði sem byggir á gamalli sögu sem allir ættu að þekkja. Ég mæli með að fólk næli sér í bækurnar og kíki á þær og svo teiknimyndasögurnar ef þær höfða til viðkomandi þegar þær koma út í næsta mánuði.

 

Forsmekkur af teiknimyndasögunum, í fullri stærð, smellið bara á myndirnar og svo aftur til að fá fulla sýn:



Related posts from the blog: