Dean Koontz’s Frankenstein
Posted on Jul 10, 2006 in BooksUppá síðkastið hef ég verið að blaða mig í gegnum Dean Koont”z Frankenstein sem er hálfgerð endursögn og hálfgert framhald af hinu klassíska “ævintýri” um Frankenstein skrímslið. Frankenstein skrímslið hefur lifað allt fram í nútíman og hefur tekið sér nafnið Deucalion og gerst munkur í tíbet en þegar hann kemst að því að Dr. Frankenstein geðsjúklingurinn sem bjó hann til næstum þremur ölduð áður er enn á lífi og fer undir nafninu Victor Helios og er aukýfingur í San Fransisco. Deucalion afræður að djöfulega áform Helios verði að stoppa en hann vill taka yfir heiminn með því að skipta öllum hönnum út fyrir hans eigin kynstofn sem hann hefur búið til líkt og Frankenstein mörgum árum áður en nú líta þeir út alveg eins og menn, nema sterkari og hættulegri.
Bækurnar eru mjög spennandi og oftast nær á maður erfitt með að telja sér trú um að það sé í lagi að leggja hana frá sér og maður sé ekki að missa af næsta shokker. Eini gallinn er að Koontz er að skrifa þetta sem framhaldssögu og það eru bara tvær bækur komnar út og næsta kemur ekki út fyrr en næsta vor þannig að það verður hrikalegt að bíða sérstaklega þar sem maður er skiliin eftir með rosalegan cliffhanger í bók númer 2. Annars fannst mér bækurnar nokkuð góðar þó að sumu leiti væri þetta endurunnið plot úr Midnight bókinni sem Koontz skrifaði fyrir nokkrum árum.
Hér eru coverin með nýja “pimp” lightbox js fítusnum sem ég er að prufa:
(Smellið á coverin til að prófa)
Næst á dagskrá er svo að skella sér í að lesa Good Times eftir Terry Pratchett (Discworld) og Neil Gaiman (American Gods ofl) og með svo góða höfunda þá hlýtur hún að vera góð.
Related posts from the blog:





