Búinn í prófum ;)

Muhahaha, kallinn er búinn í prófum (í bili) kláraði stærðfræðina í gær og þó það hafi vægast sagt verið erfitt er ég viss um að ég hafi náð. Eftir prófið þurfti ég aðeins af skreppa að vinna og hélt svo niðrí Sundahöfn þar sem við verkfræðinemarnir skelltum okkur í ferju útí Viðey að fagna próflokum í félagsheimilinu í Viðey. Þegar var hafist handar við að grilla kjötið og svangir verkfræðingar voru sefaðir með nóg af bjór. Allir nemendur drukku eins og þeim einum er lagið og voru komnir vel í það á skömmum tíma. Boðið var uppá glæsilegt kjöt og meðlæti sem vakti mikla lukku. Eftir matinn var að sjálfsögðu meira og meira drukkið eins og ávallt. Tekið var til við að dansa og nutu margir sín djúpt í dansinum. Ég eyddi mestum tímanum við að afgreiða á barnum sem var mjög góð breyting á þeim vana að vera alltaf á góðri leið í að komast í top tíu fulla fólks listan. Allir skemmtu sér frábærlega og uppúr miðnætti var síðan haldið aftur í land og rúta tekin niðrá Hressó þar sem hafist var handa við áframhaldandi skemmtun fram eftir nóttu. Við stjórnin skelltum okkur fyrst á Pizza king til að redda okkur einhverju að borða því að kjötið hafði klárast áður en við gátum borðað. Ég og Bjöggi skutumst aðeins inná Hressó en hópurinn virtist hafa splundrast þannig að við fórum með Möggu á Cultura og hittum Sigrúnu. Af culturunni fórum við aðeins á röltið á milli staða og svo heim.

Í morgun vaknaði ég svo snemma til að kveðja pabba og mömmu sem voru að skella sér til Köben yfir helgina. Svo er ég búinn að liggja í leti og glápa á Boston Legal þvílíkir snilldar þættir. Horfði líka á nokkra The Loop þætti aftur með hinu snilldar theme song Hockey Monkey með The Zambonis. Þetta lag er gjörsamlega út úr kú og ég einfalldlega varð að setja þetta sem nýju hringinguna á síman minn til að gera alla í kringum mig geðveika :)

Talandi um geðveiki þá rakst ég á Polysics ótrúlega kjánalegt myndband af skólastelpu að missa sig í asnalegum dans. Svo sendi félagi minn á mig þetta myndband af ofurnördum að leika Marvel hetjur, þetta er náttúrulega fáranlega fyndið.


Restin af myndunum


Related posts from the blog: