Búinn og byrjaður aftur…
Posted on Nov 27, 2006 in BlogVá það er alveg fáranleg tilfinning að vera búinn í prófum. Ég kláraði seinasta prófið sem var tölfræði á föstudaginn og gekk þar bara geðveikt vel miðað við einkuninna sem ég fékk en hélt samt að mér hefði ekki gengið vel…
Strax á föstudeginum var byrjað að fagna á slaginu tólf með smá kampavíns skál og svo náttúrulega fyrsti bjórinn í fjórar vikur, vá hvað hann var góður. Síðan var farið að redda áfengi fyrir kvöldið og svona veseni eins og venjulega í kringum þetta nemendafélagsstúss. Svo var almennilega byrjað að taka á því uppúr sex, flestir höfðu farið í vísó en ég ákvað að beila á því og redda Quiznos fyrir fólkið sem var í prófi allt of lengi þannig að á móti var farið út í stóra glasið þannig að maður yrði nú örugglega sóðalega mökkaður. Eftir smá sötur var haldið uppí Ölvus á sveitaball þar sem var ógeðslega óhófleg drykkja og hver maður keppti við annan um að vera drukknasta manneskjan á svæðinu. Skemmtilegasta sem ég lennti í var að einhver spurði mig hvað ég hét en ég var svo drukkinn að ég mundi það ekki.(fáranlegt að muna eftir því að muna ekki eftir hvað maður heitir…) Eftir ballið fór ég víst niðrí bæ en sá hluti er eitt stykki mjög hraðvirkt slideshow og minnið mjög götótt en ég komst allavegana lifandi heim og í vinnuna um morguninn. Einhverjir rönkuðu við sér eftir partý á Selfossi og það þurfti að sækja þá klukkan sjö um morguninn þannig að ég var mjög feginn að hafa ekki lennt í svoleiðis rugli.
Fleiri myndir
Á laugadeginum var svo vinna eins og alltaf og svo var stefnan að halda matarboð og áætluðu tíu manns að mæta í matinn enn nei það mætti enginn (wtf…) en fólk mætti samt eftir matinn þannig að þetta bjargaðist svosem. Það var sötrað rólega frameftir og svo stefnt niðrí bæ. Hef reyndar sjaldan stoppað jafn stutt í bænum en maður lifir það svosem af enda stefnir örugglega í gott djamm næstu helgi.
Sunnudagurinn var mjög skrítinn því maður er orðinn svo vanur að læra heimavinnu og á undanförnum helgum nýtt hann í prófalestur en núna var bara ekki neitt þannig að ég endaði bara á einhverju hangsi og leti sem var svosem ágæt tilbreyting en tilfinningin var skrýtin…
Í morgun byrjaði ég svo í verkefnastjórnun sem lítur út fyrir að eiga eftir að vera frekar leiðinlegt fag sem mun endast næstu þrjár vikur. Held samt að þetta verði allt í lagi enda nóg af skemmtunum framundan og örugglega fínt að fara í gegnum þetta. Annars hafði ég aftur ekkert að gera í dag þannig að ég fór bara að vinna og ákvað í leiðinni bara að skella mér á nýja MacBook Pro og seldi gömlu áðan þannig að það fljótt frágengið. Frekar fáranlegt að kaupa sér nýja vél þegar hin er rétt svo sjö mánaða en hvað gerir maður ekki þegar maður er tækjahóra. Ég sé samt framá að vera frekar fátækur út af þessu fram að útborgun sem er sem betur fer á föstudaginn :)
Related posts from the blog:
- Alveg að verða búinn í prófum
- Búinn í prófum ;)
- Átak hefst – Dagur 1
- Átak – Dagur 2
- OMG hvað vax er vont!







