Burninate

Seinast liðinn föstudag kom ég heim frá tveggja vikna útskriftarferð til Cancun Mexico þar sem mikið var skrallað og skemmt sér eins og kóngur. Þetta blog verður samt ekki Mexico blog heldur heilsu blog (MEXICO BLOG KEMUR Á MORGUN ÁSAMT MYNDUM)

Eins og flestir sem lesa þetta blog vita var ég frekar þykkur þegar ég var yngri (okay, ég var rosalega feitur…). Hinsvegar fékk ég þá geðveiku hugmynd í hausinn þegar ég var á öðru ári í Versló, orðinn 113 kg, að nú væri komið nóg og ég skyldi sko grennast. Ég byrjaði rólega, tók mataræðið taki og æfði 3-4 sinnum í viku, einn og hálfan tíma í senn. Þetta fór svo a vinda uppá sig og þegar ég var að brenna sem mest voru það 3-4 tímar á dag sjö sinnum í viku. Þetta endaði nátla með því að ég varð annorexic, 72 kg og ekki með vott af vöfðum… Blessunarlega fór ég að bæta aftur á mig og vinna í að lyfta og byggja upp smá vöðva. Undanfarin ár er ég búinn að vera á smá flakki upp og niður eftir því hversu duglegur ég er að rækta mig (til móts við að drekka mig í hel):

Gallinn sem ég bý hinsvegar alltaf við er að út af fyrri þyngd þá rík ég alltaf beint upp í þyngd ef ég hætti að hreyfa mig og borða eðlilega. Eftir Mexico sem var náttúrulega mest megnis áts og drykkjuferð þá var ég ótrúlegt en satt kílói léttari en þegar ég fór þannig að ég hef TAPAÐ HELLINGS VÖÐVAMASSA því ég bætti greinilega fullt af fitu á mig…

Þannig að nú kemur aðal innslagið í þessu bloggi en það er einmitt að fyrst er að brenna af sér Mexico fitunni og svo massa sig upp aftur til að vinna aftur vöðvamassan:

Til að skilgreina hvernig ég æfi þá er skiptingin á æfingum, þessi:

BootCamp: Þrisvar í viku og aðra hvor helgi ef ég kemst
Úti hlaup: Mismunandi lengdir frá 6km til 24km í einu.
Lyfta: Þrískipt í : A (Brjóstkassi, þríhöfði og axlir), B (Tvíhöfði og bak) og C (Fætur)

Brennslan hófst augljóslega á mánudegi því mánudagar eru leiðinlegir og það er bannað að njóta þeirra en vikan er búin að vera svona:

Mánudagur: 6km hlaup, lyfta, A
Þriðjudagur: Tveggja tíma BootCamp úti æfing (17. júní)
Miðvikudagur, morgun: 12km hlaup
Miðvikudagur, kvöld: Lyfta, B
Fimmtudagur, morgun: 10km Hlaup
Fimmtudagur, kvöld: Lyfta, A og C
Föstudagur:, morgun BootCamp
Föstudagur, kvöld: Lyfta, B

Framhaldið er svo að nota næstu viku til að losna við restina af Mexico, taka BootCamp mánudags, miðvikudags og fimmtudags morgun, hlaupa þriðjudags og fimmtudags morgun og lyfta öll kvöld. Um kvöldið á fimmtudaginn er það svo HALLGEIRSEY.

Mataræðið er nátla líka 90% af svona dæmi þannig að það er lágmark sett á kolvetni sem eru ekki gróf, forðast unna kjötvöru, borðað nóg og reglulega yfir daginn og gleypt nóg af Próteini á meðan það stendur á þessu.

Eftir Hallgeirsey verður svo svipað prógram nema ég skipti lyftingunum sennilega í þrennt og tek fætur annað hvert skipti á sama tíma og eitt af hinum þremur.


Related posts from the blog:


2 Comments

  1. Rakel R

    krææææææst bara ef maður væri svona duglegur! Vel gert;)

  2. Já! Vá ég verð bara þreytt á að lesa þetta allt saman! ;)