Drauma rugl

Úff, það var mjög mjög mjög skrýtið sem gekk í gegnum hausinn á mér í nótt. Lennti í því að dreyma mjög svona “lucid” draum, þar sem maður upplifir hann sem raunveruleikan og er við stjórn. Ég man nú ekki allt sem gerðist í draumnum en í grunn atriðum var ég eitthvað að djamma með allt allt of mörgum vinum mínum, hvenær kemur það fyrir að maður er með 50 manns að djamma í einu (nema náttúrulega á HR djömmum) en við vorum eitthvað út um allt og enduðum svo einhverstaðar úti á landi á sveitaballi. Ég man að ég var eitthvað rosalega að pæla í öllu í kringum mig og skoða einhver listaverk í húsinu. Eitt listaverkið sem ég rakst á festist í hausnum á mér, það átti að tákna karl og konu. Karlinn var táknaður sem einfaldur hlutur settur saman úr örfáum einingum tengdum saman á mjög bjagaðan hátt en mjög samundið. Konan var táknuð sem flókinn hlutur settu saman úr fjölda eininga tengdum mjög lauslega saman en mjög skipulagt. Verst að ég man ekki alveg hvernig þetta leit nákvæmlega út að öðru leiti en því hvernig þetta lýsti kynjunum og að þetta var úr málmi því að maður gæti örugglega grætt vel á að skella svona hlut í sölu. Allavegana þá var þetta drauma-djamm svipað og venjulegt djamm að því leiti að ég vissi ekkert alveg hvernig djammið hafði endað og hvernig ég hafði komist heim en ég vaknaði semsagt daginn eftir enn í draumnum og hann var einhvern veginn það raunverulegur að ég vissi ekki að mig væri að dreyma en ég er ekki viss um hvað gerðist næst en þegar ég sá félaga mína berjast með ninja sverðum í stigaganginum hjá mér fattaði ég að mig var að dreyma og vaknaði, hristi hausinn yfir hvað þetta hefði verið skrítið og fór aftur að sofa…


Related posts from the blog: