Eftir kerfis

Á þriðjudaginn kláraði ég næst seinasta prófið mitt sem var hið mannskemmandi fag kerfisgreining. Í þessu fagi er ég búinn að sitja fjórfaldan fyrirlestra tíma á viku seinustu 12 vikur og það var ávallt verið að röfla um sama hlutinn og svo kom alltaf meira og meira í ljós að kennararnir virtust einhvernvegin vera minna með efnið á hreinu en við. Samt var ekki nokkur hræða í námskeiðinu búin að lesa bókina því að hún er svo leiðinleg og illa skrifuð að tveggja blaðsíðna lestur er nóg til að senda þig í draumaheimin. Við tókum samt prófið hress og kát og enginn búinn að gera neitt nema prennta út heimadæmi, lausnir og sumir glærurnar og engum fannt hann verr staddur fyrir vikið, flestir nýttu tíman til fulls en prófið var hinsvegar mjög létt og hefur örugglega verið léttara fyrir þá nemendur sem höfðu vit á að prennta ítarefnið sem kom í ljós að var 25% af prófinu…..

En eftir prófið var sko ákveðið að nú þýddi ekkert minna en bjór því var afráðið að skella sér Café Cultura að snæða og sötra. Ég byrjaði á skutla Möggu, Helga og Sigrúnu þangað og fattaði þá að ég ætlaði að kíkja heim til Elvu frænku að redda tölvunni hennar eitthvað, hélt nátla að ég yrði enga stund að því og skildi krakkana bara eftir á Culturunni og sagðist koma eftir 20 mín. Nei það varð nú aðeins meira en 20 mín og þegar ég loksins kom niðrí bæ var fólkið farið á Kofa Tómasar frænda, þannig að þangað hélt ég og fékk mér margþráðan bjór og samlóku að borða. Krissa hafði einnig bæst í hópinn meðan ég var frá.

Eftir dáldla setu á kofanum kom einhver með þá hugmynd að við færum í ríkið og svo uppí Hallgrímskirkjuturn (hver kom með þessa hugmynd???). Ég, Helgi og Magga héldum í Mecca háskólanema á Íslandi ÁTVR og keyptum nokkra bjóra og ég og Helgi vorum svoldið rónalegir að sötra þetta á leiðinni upp að Hallgrímskirkju. Auðvitað tókst okkur að mæta of seint og búið var að loka :( Þá ákváðum við að fara í pool og skelltum okkur á poolstofuna við Hverfisgötu tókum tvo leiki og fórum svo að spila. Héðinn kíkti aðeins í heimsókn en forðaði sér af ótta við að lenda á fyllerí. Eftir nokkur spil voru allir komnir með nóg og Magga og Sigrún fóru heim til sín og ég, Helgi og Krissa héldum í Melabúðina (ahhh nostalgía, við versluðum alltaf þarna þegar ég átti heima á Reynimelum hér forðum). Við keyptum okkur kjúlla og tortilla kökur og fórum heim til Krissu að borða þetta.

Við höfðu mikið pælt í hvort við ættum að skella okkur á einu auglýstu tónleika kvöldsins en þegar við komumst að því að þarna var á ferðinni hið óspennandi metal band Momentum. Við hættum við að fara og skelltum okkur bara á Dillon og hittum Héðinn og Andra. Þá tók ég uppá því að blæða all svakalega úr bölvuðum puttanum og það stoppaði ekki fyrr en ég var búinn að vefja pappír um hann þangað til hann varð fjólublár :P

Eftir nokkurn tíma á Dillon afréðum við að við bókstaflega yrðum að sjá allavegana eitt lag með þessu geigvænlega metal bandi og röltum niðrá Gauk. Þegar við komum voru tónleikarnir í fullum gangi en váv hvað þetta var slappt, tónlistin var þessi grunn innantómi metal með engu á bakvið sig og þó að gólfið væri stappað af síðhærðum metal hausum í leðurjökkum var ekki að sjá að nokkur væri að skemmta sér nema þessir þrír sem við sáum að slamma fremst. Það var ekki einu sinni pittur, hvurslags metal tónleikar hafa ekki pitt? Við íhuguðum að joina gaurana sem voru að slamma en vikum frá því og héldum á efri hæðina og hittum þar á viðskiptafræðinema sem höfðu einmitt verið að klára sitt seinasta próf þá um morguninn og voru nú að byrja að skemmta sér í þessu nær tveggja vikna fríi sem þau fá (grrr, öfund…). Hitti þar fyrir Agga og hann sagði að þetta skildi sko bara vera fyrsti dagurinn af mörgum og að hann ætlaði að vera fullur fram á Sunnudag og á meðan svekki ég mig yfir því að læra undir stærðfræði :(


Related posts from the blog: