Ég ætlaði ekki að drekka

Ég ætlaði ekki að drekka um helgina en eins og venjulega þá stóðst það ekki frekar enn fyrri daginn. Á föstudaginn fór ég með verkfræði- og tölvunarfræðinemum í vísindaferð til Landsbankann. Þetta var 100 manna ferð og hún fylltist á tveimur mínútum sem er náttúrulega lýsandi dæmi um hvað fólk elskar mikið frítt áfengi :) Eftir vísindaferðina var síðan farið í fyrsta partýið hjá útskriftaráði verkfræðinema á Hallveigastöðum. Það var gott stuð en ég drakk heldur betur of mikið þegar ég og Svavar misstum okkur aðeins í Ópalinum og tókum fyrst 5 skot í röð og svo aftur 3. Síðan var að sjálfsögðu djammað frameftir en ég man ekkert en fékk að heyra að ég hefði verið mjög skrautlegur frá fólki daginn eftir.

Í gær var svo pottapartý hjá Ívari þar sem að R-fjöldskyldan hittist, ég fór sem betur fer rólegra í drykkjuna í þetta skiptið þannig að það var mun betra kvöld :P


Related posts from the blog: