Einnhvað um fjármál

Fyrst ég er byrjaðu að röfla þá er komið að “uppáhalds” umræðunni minni, hversu mikið er allt að fara til fjandans í fjármálaheiminum?


 

Hrikalegasta fyrirsögn mánaðarins er augljóstlega: Hansen Natural (HANS) shares plunging — now what?.

Man ég vissi ekki að þetta fyrirtæki væri til en gaman að einkennið þeirra á NASDAQ er HANS en leiðinlegt að það sé slæmt gengi hjá þeim. Hansen Natural er fyrirtæki sem framleiðir orku- og ávaxtadrykki og þessar fréttir koma í kjölfar slæms árangurs á seinasta fjórðungi hjá þeim:

Eftir slæmt ástand Dollara á móti Evrum uppá síðkastið hafa menn verið að gera grín að því með því að segja að staðan sé svona:

En hinsvegar ef maður fer að pæla í hvernig gengur þá blessaðri Krónunnni vinkonu okkar. Já sko til hún er miklu miklu verr stödd…

EUR/USD kross: Blár, EUR/ISK kross: Grænn, USD/ISK kross: Rauður:

Ég er búinn að segja það í svoldinn tíma en það er kominn tími á að skipta í Evruna, það mun taka nokkur ár en þetta ferli verður að fara af stað og það er kominn tími til að menn verði raunsæir í þessum efnum…

Það er þó ekki eins og við séum á beinni leið í glötun þar sem að krónan hefur styrkst mikið undanfarna daga og skuldatryggingarálag íslensku bankana hefur dregist saman, sbr grein fréttablaðsins í dag:

Íslenskir bankar nálgast erlenda

Viðskipti Skuldatryggingarálag á íslenska banka lækkaði í kjölfar gjaldeyrisskiptasamninga Seðlabankans sem kynntir voru á föstudag. Kjör íslensku bankanna á erlendum fjármálamörkuðum hafa batnað mest allra banka.

Skuldatryggingarálag er gjald sem leggst ofan á alþjóðlega millibankavexti og hækkar eftir því sem meiri áhætta er talin tengjast viðkomandi banka.

Álag á skuldabréf Landsbankans hefur lækkað mest síðan á föstudag, um 65 punkta, og nálgast kjör sem sumum erlendum stórbönkum standa til boða. Þar á eftir kemur Kaupþing með 28 punkta lækkun og svo Glitnir með 26 punkta lækkun. Mest álag er eftir sem áður á bréf Kaupþings, 425 punktar. Álag á bréf Glitnis er 380 punktar en 185 punktar á bréf Landsbankans.

Gengi krónunnar heldur áfram að styrkjast og hafði við lok markaða í gær styrkst um 7,8 prósent á fimm viðskiptadögum, að því er greiningardeild Landsbankans bendir á. Í gær styrktist hún um 1,1 prósent, en um 4,1 prósent á föstudag, sem er mesta styrking á einum degi síðan í apríl 2002.

Annars er nátla allt í ljósum logum í húsnæðismálum vestanhafs og hafa bankarnir reynt að taka á málunum einhvern vegin en að mínu mati klárlega með röngum hætti, eða með því t.d. að frysta eða cappa lánalínur fyrir húsnæðisveð:

“The latest example of this is in the mass freezing of home equity lines of credit going on across the country. Reeling from losses on their wretched loan decisions of recent years, lenders are preventing borrowers with pristine credit and significant equity in their homes from tapping into credit lines that they paid dearly to secure.

In the last 30 days, lenders have sent several hundred thousand letters advising borrowers that their home equity lines of credit are frozen, estimated Michael A. Kratzer, president of FeeDisclosure.com, a Web site intended to help consumers reduce fees on home loans.

Major lenders — including Washington Mutual, IndyMac Bank and the Greenpoint Mortgage Unit of Capital One — say that declining property values are prompting the decisions to cut off credit.”

Hvað væri blog um fjármál ef ég myndi ekki minnast aðeins á blessað olíverðið. Nýlega kom fram greining frá greiningardeild Goldman Sachs undir leiðsögn Arjun N. Murti sem kveður á að verðið á tunnu af olíu gæti stefnt í $150-$200 á næstu sex til 24 mánuðum. Þegar þessi greining kom út byrjuðu menn að fussa og sveia og segja að þetta væri allt of hátt. En ef litið er til fyrri greininga frá Murti þá sagði hann að öryggisbilið frá 2005 út 2009 væri [$50 $105] og það er augljóslega búið að sprengja það því tunnan er í dag á $126.76. Eins árs spár í dag standa á bilinu $150 til $175 þannig að $200 á 18-24 mánuðum er alveg lókíst framhald að öllu öðru óbreyttu. Þetta er nátla hrikalegt ástand og augljóslega á maður að vera að blæða í framvirka samninga með spot í dag (já og kanski bara að fara hamstra bensín…)

Ég er búinn að vera að rölta í gegnum meðmæli og and-meðmæli á fjármála lesefni frá nokkrum þekktum fjármála pistlahöfundum uppá síðkastið og rakst á umfjöllun fyrir bókina The Bush BoomHow a Misunderestimated President Fixed a Broken Economy. Þessi titill er nátla mesta WTF titill sem ég hef séð á ævi minni…. en umfjöllunin sem vakti athygli á bókinni var þessi:

Through the Looking Glass, October 24, 2003
By Alice (Wonderland)
“Finally! A book that proves the existence of an alternate universe. Obviously, a rip in the space/time continuum between this universe and the other universe where Bush is presiding over a ‘boom economy opened up and this book fell through. Can there be ANY other explanation?”

Haha, nátla bara snilld, seinasta verð á bókinni hjá Amazon áður en hún var tekinn úr sölu hjá þeim var 1 cent :)


Related posts from the blog: