Enginn Ómar?
Posted on Apr 29, 2007 in BlogÍ gær var kíkt í vísindaferð í hinn nýja stjórmálaflokk Íslandshreyfinguna. Persónulega er ég mjög ópólítískjur en ákvað nú samt að fara enda ferið með hugafarið “frír bjór er frír bjór”. Það kom hinsvegar á bátinn að frír bjór er ekki bara frír bjór, því það er víst einnig til ódrykkjarhæft sull sem er kallað bjór, það var boðið uppá Carib, the Carribean Premium og VK Kick eitthvað VDK knock of brand. Flest allt var ógeð. Þrátt fyrir slæmt val á áfengi kom Íslandshreyfingin nú allt í lagi fyrir meðan þau voru að kynna stefnu og áherslumál flokksins en svo var einhver skrýtin kona kölluð fyrir sem var söngstjóri flokksins og svo endaði þetta með einhverri kommúnu pælingu þar sem frambjóðendur og Elli skemmtanastjóri tóku baráttulag Íslandshreyfingarinnar:
ÍSLANDSHREYFINGIN – LIFANDI LAND!
Samtaka nú syngjum við öll
svo að hljómar um dali og fjöll..Íslandshreyfingin – lifandi land
létt hér beislar gleðinnar gandEinstæða náttúra er okkur kær,
endalausa gleði hún ljær.Hátt á loft nú hefjum við brand
með hugsjónir í raunsæi í blandVerjum, verjum landið!
Vinnum nú þennan slag!Samtaka nú syngjum við öll
svo að hljómar um dali og fjöll
Eins gott að greyið Elli var orðinn blindfullur eftir að hafa verið að drekka síðan klukkan fjögur og farið í aðra vísó áður en hann kom í þessa. Eftir sönginn losnuðum við frá kommúnunni og haldið var á Glaumbar þar sem fríkeypis kútur beið okkar. Kúturinn var fljótt afgreiddur og svo var kíkt á Hverfisbarinn að hitta á viðskiptafræði og lögfræðinema en þeir voru barast ekki á staðnum en mættu eitthvað á eftir okkur. Ég var enn með smá kvef þannig að ég ákvað að prufa ráðið hans Magga einu sinni enn og slúrpa í mig smá viskí sem fór eitthvað illa í mig og uppúr miðnætti var ég kominn í hringja í fólk með pointless símtöl um ekki neitt sem var bara rugl… það var líka orðið mökk troðið á hverfis þannig að ég fór bara heim um eitt leitið, nennti þessu ekki lengur.
Related posts from the blog:
- Ég ætti svo að vera að læra…
- Prófa rugl…
- Undefined function: breadcrumb()
- Sleppa drykkju heila helgi?
- Ofur stærðfræði föstudagur





