Þjóðhátíð 2006

Þá er glæsilegasta helgi sumarsins afstaðin og að sjálfsögðu var haldið til eyja eins og sönnum Íslending sem fær frí frá vinnu sæmir. Haldið var af stað með Herjólfi beint eftir vinnu á fimmtudeginum, ég fór með allri familíunni enda pabbi frá Eyjum og allir spenntir fyrir ferðinni. Þegar ég kom um borð var ég orðinn svoldið svangur þannig að ég ákvað að skella mér að fá mér að éta og hvern sé ég ekki nema Helga kallinn sem hafði harð tekið fyrir að fara á Þjóðhátíð einungis tveimur dögum áður þannig að það var skemmtilegt surprise. Fyrsta kvöldið var svo farið á eitthvað flakk og ég, Héðinn og Helgi fórum á húkkaraballið sem var allt í lagi, jafnvel þó mér þyki hugmyndin á bakvið það enn frekar kjánaleg. Út af því að þetta var fyrst kvöldið og stefnt var á að vakna í fyrra fallinu var hlaupið heim í bullandi rigningu og reynt að ná örfáum tímum af svefn.

Á föstudagsmorguninn héldum ég, pabbi, Óskar, Hjörtur og Aron niðrí dal til að skella upp og gangafrá hvíta tjladinu. Það tók ekki langan tíma og þegar það var komið upp var haldið í íbúðina hjá Lilju og Óskari og fenginn kaldur lundi með uppstúfi, yummy. Eftir það hélt ég uppí íbúð þar sem Helgi, Bjöggi, Magga, Addi, Brynjar og eitthvað af stelpum áttu að gist. Þar var farið hressilega í drykkjuna og allir voru ass faced þegar Bjöggi, Magga, Addi og fleiri komu með fluginu um kvöldið. En það aftraði náttúrulega engum og þegar menn voru búnir að draga sig saman í andlitinu var farið niðrí dal. Þar var svo djammað og djúsað fram eftir morgni út um allan dal og einnig kíkt í hvíta tjaldið og fengið sér yndislegan Lunda. Eftir minnislegasti viðburður föstudagsins er víst þegar Helgi tók sig hressilega til og hljóp beint út í tjörn, þykir hrikalegt að hafa misst af þeim viðburði.

Á laugadagsmorguninn vaknaði ég í húsi sem ég veit ekki enn hvar var og í svo ógeðslegum skóm að ég hennti þeim frá mér á miðri leið og labbaði heim á sokkalistunum. Þegar komið var heim var lúrað aðeins meir og svo tekið aftur til við drykkjuna. Í þetta skiptið var tekið jafnvel meira af bumbu” glösum en kvöldið áður og svo farið niðrí dal og að sjálfsögðu djammað fram eftir morgni. Í þetta skiptið sofnaði ég svo í sófanum hjá krökkunum og það hefur alveg pott þétt eitthvað geðveikt fyndið gerst en ég bara hreinlega man ekki eftir því.

Á sunnudaginn vöknuðu allir rosalega hressir (eða þannig) og mér til mikillar skelfingar var mér tilkynnt að Helgi hefði yfirgefið okkur með Herjólfi kvöldið áður, ákvörðun sem hann fyrirgefur sér örugglega seint enda sunnudagurinn lang skemmtilegasta kvöldið. Eftir að allir voru vaknaðir var ákveðið að fara að éta og ekki ætlaði það nokkurtíman að ganga eftir en það tók alveg rúman einn og hálfan tíma að fá pizzu á staðnum Café María (fer ekki í meðmæla bókina) og við fengum ógeðslegasta Mojito sem gerður hefur verið. Um kvöldið var svo enn meira drukkið og svo náttúrulega haldið niðrí dal í brekkusönginn. Það var alls ekki skemmtileg reynsla að reyna að lifa klifurið í brekkunni af og mér tókst að fljóga á hausinn og renn niður 5-10 metra allavegana tvisvar. Þrátt fyrir mudslidera var geðveikt stuð og svo dansað fram eftir morgni, ég var eiginlega alveg búinn á því um klukkan átta og settist með nokkrum krökkum bara að tala og skellti mér svo beint í sturtu á hótelinu og í Herjólf. Eftirminnulegasti viðburður sunnudagsins var klárlega bilaði six pack gaurinn sem var ber að ofan og að dansa brjálaðan techno dans einn úti á miðju túni rétt fyrir framan okkur og það var ekki nokkur vottur af tónlist í mörg hundruð metra færi.

Allt í allt er þetta án efa besta djamm helgi sumarsins og allir hafa tekið ákvörðun um að fara aftur á næsta ári. Besti nýji vinur minn úr ferðinni er “bumpu/bong” glasið sem mér tókst náttúrulega að gleyma og á eftir að reclaima það frá þeim sem tók það…

Eftir að maður kom heim tókst mér svo að sofa stanslaust í gegnum allan mánudaginn og vera með frákvarfseinkenni þegar ég vaknaði í vinnuna í morgun, og var titrandi fyrri helming vinnudagsins. Núna er bara að fara vakna í fyrramálið og pakka fyrir ferðina til London.

Hér eru svo einhverjar myndir, vantar reyndar slatta sem kemur fram sem corrupted á kortinu af einhverjum ástæðum en það verður bara að duga:


Related posts from the blog:


1 Comment

  1. Sælar sælar!! Takk fyrir síðast!! heh… Þessi Þjóðhátíð var náttla BARA snilld!! Heh.. og Fjólugatan klikkaði ekki!! Heh.. En ég veit um Bumuna!! =)