Föstudagurinn langi

Eftir að hafa hangið yfir stærðfræðinni á föstudaginn var afráðið að skella sér aðeins í bæinn, ég og Helgi héldum til Adda Magg þar sem hann og Sigurjón sátu í rólegheitum að glápa á sjónvarpið. Við fengum okkur nokkra bjóra og horfðu á restina á Finding Forrester og héldum svo niðrí bæ. Við skelltum okkur fyrst á Ara í Ögri og ég hef bara aldrei upplifað annað eins bara 6-7 mann þarna inni. Hef bara tvisvar komið á Ara og fengið sæti hvað þá að geta valið að setjast hvar sem er :P Eftir að hafa fengið okkur bjór á Ara héldum við á Prikið og þar var sama staðan á hlutunum mjög fáir mættir og allt rólegt, fengum okkur auðvitað bjór þar líka og það merkilega var að ekki var vottur af reykingarlykt á staðnum, þvílík tilbreyting, mjög athyglisvert. Þegar við yfirgáfum Prikið var greinilegt að fólk var farið að streyma niðrí bæ og þegar við fórum svo á Hressó var staðurinn orðinn vel pakkaður. Hressó var frekar daufur og við ekki nógu fullir til að stefna í dansstemminguna þar svo við héldum á Cultura og hittum Sigrúnu og frænku hennar, fengum okkur einn bjór og héldum svo á Ellefuna þar sem Sigurjón tók sig til við að hösla Kristen Dunst tvífara :) Hittum þar Héðinn og þegar stefndi að lokun ákváðum við að fara á Pizza King og svo heim.

Í gær var það svo vinna eins og venjulega og alltaf finnst mér ótrúlegt að fólk nenni að mæta að versla í sérvöruverslun í miðju fríi eins og páskafríinu. Eftir vinnu var ég svo að drepast úr þreytu að ég nennti ekki einusinni að læra, fór aðeins í tölvuna og var svo að sofna þannig að ég lagði mig aðeins og þegar ég vaknaði var ég enn þreyttur þannig að ég ákvað bara að fara að sofa, klukkan níu á laugardagskvöldi !!! Svo vaknaði ég ekki fyrr en klukkan tíu í morgun þannig að ég held ég hafi ekki sofið jafn mikið síðan ég var krakki. Núna er það bara létt páska chill og svo stærðfræði í kvöld.

Restin af myndunum


Related posts from the blog: