Frábær árshátíð

Seinast liðinn fimmtudag hélt Pragma árshátíð sína árið 2008. Árshátíðar dagurinn var uppfullur af allskonar drama og skipulags reddingum á seinustu stundu eftir einungis tveggja tíma svefn um nóttina. Þegar ég komst loksins á árshátíðina rétt uppúr sjö þá var fólkið rétt að byrja að tínast inn og sumir komnir veeeel í glas strax þegar þeir mættu. Fyrsti maðurinn til að fara heim vegna öfurölvunar var farinn heim fyrir forrétt.

Kvöldið hófst vel, ég kom með einhver stutt þakkar orð og kynnti svo Svöfu Grönfeldt heiðursgest í pallin til að halda stutta ræðu. Skemmtanastjóri kvöldsins var Örn Árnason sem stóð sig með prýði og fór strax í frábært atriði í anda Eurovision lagana:

Maturinn á Gullhömrum var frábær og meðan fólk sat við snæðing var dregið í happdrætti og kynnt úrslit kosninga nemenda:

Djamm ársins: Próflokadjamm í Hvalfirði
Djammari ársins: Elli
Skandall ársins: VBS herbergið, Agla og Bergur
MBL Húsgagnið: Gissi
Kennari ársins: Siggi stærðfræði
Frasi ársins: Já fínt, já sæll
Skemmtistaðasleikur ársins: Anna M. og Andri Páll
Fúsboll spilari ársins: Valdís Lilja
Afritari ársins: Jónas Óli
Kóngur og Drotning Pragma 2008: Einar Már og Agla

Þegar eftirrétturinn var svo borinn fram var annállinn sýndur við mikla lukku:

Eftir matinn var svo ball með Veðurguðunum sem héldu uppi gífurlegri stemmingu til klukkan eitt. Að árshátíð lokinni héldu þeir sem ekki voru bugaðir í eftirpartý en aðrir heim.


Restin af myndunum
 

Föstudagurinn fór að mestu leiti í svefn enda kallinn orðinn vel kúrinn eftir vikuna. Það gekk náttúrulega ekki að sofa bara endalaust þannig að ég og Elli kíktum á partý sem Lögrétta hélt í Hamraborginni en þangað mætti enginn nema þeir sem voru að vinna á barnum… Út af þessari fámennu stemmingu fluttum við okkur í partý hjá Bjarna Einars niðrí bæ. Eftir partýið var svo þetta klassíska hauslausa djamm sem einkennir svo marga föstudaga.

Á laugardeginum kíktum við svo á afmæli Lögréttu, fyrst í Ofanleiti og síðan á Hverfisbarnum. Hvorutveggja verður að teljast fámennt en góðmennt ….


Related posts from the blog: