Framsókn
Posted on Jun 10, 2006 in BlogEftir þessar blessuðu sveitarstjórnarkosningar er náttúrulega augljóst að Framsóknarflokkurinn er gjörsamlega búinn að skíta uppá bak. Þeir töpuðu einum manni í Reykjavík og tveimur hér í Kópavogi. Síðan núna í kjölfar kosningana hélst samt meiri hlutinn í Reykjavík og Kópavog. Einnig hefur Halldór Ásgrímsson sagt af sér sem forsætisráðherra og stefnt er að Geir H. Haarde taki við af honum á fimmtudaginn og einnig munu þeir fá aftur þau sæti sem þeir gáfu eftir til að Halldór yrði forsætisráðherra og munu skipta út öllum þeim ráðherrum fyrir nýja til að, I dunno, vera ekki með sömu…. Ég held að Framsókn sé gjörsamlega búinn að klúðra öllu sem gerði þá einstaka það er að vera eini miðju flokkurinn og geta þar með unnið með flokkum báðu megin við miðjuna. Núna eru hinsvegar allir aðrir flokkar búnir að stafla sér á miðjuna og því að framsókn er að sjálfsögðu geðveikir þegar kemur að rökréttum kosningar loforðum þá hafa þeir fallið í minnihluta fyrir hinum flokkunum. Þeir virkilega þurfa að taka sig á og/eða skipta algjörlega um stjórn flokksins og virkilega taka sig saman í andlitinu hvað varðar sína stefnu.

Related posts from the blog:





