Frjókorna ógeð
Posted on Jul 9, 2006 in Blog
Það var sko ekki gaman að vakna í morgun og geta varla andað, búinn að lenda í þessu aðeins uppá síðkastið ef ég gleymi að taka ofnæmislyfin mín. Það að vera með frjókorna, hey og allskonar gróður ofnæmi er algjört hell og að vera poppa þessar pillur á hverjum degi er algjör pína sérstaklega þegar kemur að drykkju þar sem maður verður alveg dauð dauð þreyttur og mun fyllri ef maður er að drekka ofaní þær. Þetta var mjög augljóst í gær þegar ég fór í innflutningspartý til Möggu og Bjögga sem fluttu nýlega í hús sem að afi Bjögga á og ég meina HÚS, það er stórt og mjög flott. Mér leið eins og fávita fyrst þegar ég mætti því að þá voru bara Magga og Bjöggi sem ég þekkti og barast enginn annar, en sem betur fer komu loksins einhverjir sem ég þekkti og síðan skelltum, ég, Addi og Sigurjón okkur niður í bæ á Ellefuna.
Þrátt fyrir ógeðis frjókornin þá stefnir þetta í snilldar viku, Superman Returns á miðvikudaginn og svo byrjar Stargate Atlantis og SG-1 á SciFi rásinni á föstudaginn, ekkert nema snilld.
Related posts from the blog:
- Manchester tónleikarnir
- Átak hefst – Dagur 1
- Drauma rugl
- Sleppa drykkju heila helgi?
- Búinn og byrjaður aftur…





