Fucking andskotans…

Ég Helgi, Addi, Héðinn og Aníta fórum alla leið uppá Hellu í dag til að ég, Addi og Helgi gætum stokkið í fallhlíf. Við komum á staðinn um klukkan hálf sjö og þá var ekki byrjað að stökkva ennþá því að “jump masterinn” mætti bara fimm mínútum á undan okkur sem þýddi að enginn hafði stokkið og við vorum fjórði þriggja manna hópurinn í röðinni og ekki var víst hvort við gætum stokkið en skipuleggjandinn sagði að honum þætti það líklegra en ekki og við ákváðum því að bíða og sjá til. Um hálf ellefuleitið kom svo í ljós að ekki yrði mögulegt fyrir okkur að stökkva og því héldum við heim svekktari en andskotinn og þurfum að bíða fram á mánudag til að geta stokkið því það er verið að nota völlinn undir flugsýningu yfir helgina….grrr…. Núna sit ég og sötra biturleika bjór og borða munchies svekktur og bitur (takk, Árni, ég lærði sko af meistaranum).


Related posts from the blog:

One comment

  1. Það miklu betra að vera bitur þegar maður kann það vel. Það tekur ekki eins mikið á og fólki finnst það miklu fyndnara. Mundu bara að blóta með fullan munnin og láttu mylsnuna af mönninu frussast út þá ertu góður.

Leave a Reply