Fyrsta helgin afstaðin

Jæja mér tókst það fór heila helgi án þess að drekka og fór samt bæði kvöldin á staði þar sem var frítt áfengi. Á föstudeginum skellti ég mér í vísindaferð sem ég hélt að væri til eMR en svo kom barast að því að það er ekkert til lengur heldur þannig að raun vorum við að fara í TM Software. Þegar þangað var komið fengum við stuttan fyrirlestur og svo var frábær matur og það var boðið upp á bjór að sjálfsögðu og það var sko Thule af öllum tegundum, uppáhaldið mitt en ég var bara í sódavatninu. Héðinn kom með mér og við vorum ekki nema 6 úr verkfræðinni, því allir eru orðnir svo lærdóms fúsir. Eftir vísó var svo farið aftur í skólan að læra (úff það hefur aldeilis kólnað í helvíti þá).

Í gær var það svo vinna og verkefnisvinna í tölfræði. Um kvöldið gafst ég svo loks upp á að hanga og gera ekki neitt þannig að ég skellti mér niðrá Apótek þar sem Nýherji var með einhvern fögnuð vegna HiDef daga sem þeir voru að halda og hafði boðið Apple mönnum með því við vorum með bás á kynningunni. Þarna var að sjálfsögðu frítt áfengi eins og fólk vildi en nei ég hélt aftur af mér. Eftir Apótekið var svo farið á Rex (þúst wtf… old peoples) sem var allt í lagi en það varð alltaf erfiðara að halda aftur af sér, en tókst þó og ég fór edrú heim um þrjúleitið.

Ég er enn ekki alveg að skilja hvernig þetta gekk eftir en mér tókst að fara í gegnum fyrstu helgina edrú síðan í vorprófunum. 9 dagar liðnir og “bara” 19 eftir!


Related posts from the blog: