Fyrsti dagurinn í skólanum
Posted on January 8, 2008 in Blog
Vei, skólinn er byrjaður aftur eftir rosalega skemmtilegt jólafrí sem fór að mestu leiti bara í að vinna og vera veikur þó það hefði einnig sína ljósu punkta.
Hef ekkert bloggað að viti lengi og nenni ekki að fara í eitthvað upprifjunar drasl en á þessum tíma er ég búinn að vera í sambandi sem endaði jafn snöggt og það hófst, búinn að vera ótrúlega latur í ræktinni og skemmta mér passlega mikið. Svo ég hraðspóli bara til dagsins í dag sem er búinn að vera frekar dræmur, skólinn hefur farið rólega af stað með fyrstu tímana þó ég hafi ekki haft það í mér að nenna að mæta í alla. Þegar maður er svona að byrja aftur í skólanum þá dettur maður aftur í svo zone out tímabil í tölvunni þar sem allt verður spennandi. Digg.com og RSS þræðir frá mismunandi síðum og teiknimynda strípur hafa verið velkomnir vinir í dag, þannig að ég tileinka þennan póst tilgangslausu drasli sem ég hef rekist á í dag og fannst athyglisvert:
Fyrstur á dagskrá er “Press the spacebar 2000″ hinn gífurlega vinsæli leikur sem hefur farið sigurför um heimin.
Talandi um tölvuleiki þá prufaði ég nýja Soldier of Fortune um daginn og get ekki annað sagt en að þessi teiknimyndasaga lýsi honum nákvæmlega:
Síðan rakst ég á posterinn fyrir nýju Indiana Jones myndina sem verður örugglega geðveik:

Það er ógeðslega oft á netinu verið að ræða um hvað sumar sjónhverfingar eru silly og auð útskýrðar en útskýrið þetta fyrir mér, vinsamlegast:
Örugglega margir sem þjást af allskonar fóbíum en ég er allavegan feginn að ég er ekki með Eurotophobia, Venustraphobia eða hvað þá Pantiphobia það væri hrikalegt:
Hér eru tvær góðar Wulffmorgenthaler strípur en önnur vekur upp góða spurningu, hversu marga aukastafi í PÍ kann maður eiginlega?
Allir hafa einhvertíman spilað skæri, blað, steinn en núna er komin út atvinnumanna útgáfan sem allir ættu að læra enda stórskemmtileg:
Svona í lokin eru hér tvær frábærar XKCD strípur, önnur er í tilefni þess að ég er að fara í fyrsta tíma í SQL á morgun og hin er lýsandi dæmi um að fólk þarf virkilega að læra að lesa leiðbeiningar bæklinga:

Related posts from the blog:









