Gleðileg jól
Posted on Dec 24, 2006 in BlogNúna er tími til að segja gleðileg jól enda klukkan alveg að verða sex maturinn mallar og allt að verða tilbúið. Það er ótúrlega þægilegt að allt vesen og stress sé búið. Seinustu dagar í vinnunni eru búnir að vera hrikalegir það er næstum allar vörur í versluninni búnar en samt áætlað vera með útsölu milli jóla og nýárs…. Íslendingar eru alveg búnir að vera crazy í iPod, hátalara og vélarnar hjá okkur. Gærdagurinn var samt verstur því enda skilar “desperate” fólkið sér alltaf á þorláksmessu og er alveg ótrúlega erfitt.
Þrátt fyrir langa vinnudaga í vikunni er samt búið að vera ágætt rugl í gangi eftir vinnu seinustu daga. Á fimmtudaginn var jólaball háskólanema þannig að ég ákvað að skella mér með Bjössa við fórum fyrst í stærðfræði og eðslifræði fyrirpartý, ekki margir á svæðinu en fáranlega mikið af fríum Tuborg jólabjór þannig að goodie goodie. Fórum svo á ballið og það var fínt nema það var algjörlega troðið á aðal dansgólfinu.
Föstudagurinn var svo vinna í tólf tíma og eftir það var jólaglögg og chill hjá Bjögga og Möggu sem var fínt, það nenntu fáir niðrí bæ þannig að það var bara hangið langt frameftir og farið svo beint heim sem var góð tilbreyting frá blessuðu bæjarruglinu alltaf hreint.
Þorláksmessa var svo skull vinnudagur eins og ég bennti á að framan… en ég og Addi kíktum aðeins niðrí bæ eftir að ég var búinn að vinna og hittum Helga og nokkra gaura úr hafnarfirðinum og skelltum okkur á smá pub rölt en að sjálfsögðu var næstum ekkert að viti opið, nema Sólon var troðinn en við nenntum ekki að vera þar þannig að það var bara tekin einn Guiness á Dubliner svona sem upphitun fyrir London í janúar. Eftir einn góðan Guiness fengum við okkur Nonna og kakó og skelltum okkur heim.
Í morgun var svo reddingur með seinustu jólagjöfina en ég og Aníta skelltum okkur bara í Kringluna og redduðum því á 20 mínútum og skutluðum pökkum í leiðinni. Núna er bara búið að vera afslöppun að sötra rauðvín og leyfa sér að njóta þess að eiga ekki eftir að gera neitt. Ætti samt sennilega að fara leggja á borð…. kanski ég drífi bara í því.

Related posts from the blog:





