Góðgerðaruppistand
Posted on May 4, 2006 in BlogJæja það er svo sannarlega “no such thing as a free lunch” við stjórnin í Pragma fórum á hádegisverðarfund með markaðsfulltrúum Landsbankans á Apótekinu. Auðvitað splæsti bankinn í matinn en út af því að það er ekki séns á að fá bílastæði í Reykjavík án þess að lenda í að borga í stöðumæli lennti ég náttúrulega í því að fá sekt sem samsvaraði næstum upphæðinni af hádegismatnum. Það munaði bara 3 mínútum en auðvitað þurfti það að gerast að þá væri stöðumælavörður á ferðinni hjá mínum bíl.
Ég bætti mér það samt upp með því að ég, Helgi, Bjöggi, Magga og Sigrún skelltum okkur á uppistand með Þórhalli Þórhallssyni, Oddi Boxser og Björk Jakobsdóttur. Þetta var góðgerðaruppistand fyrir Dagdeild Hjúkrunarheimilisins Eir og voru haldnir á Gauknum. Allir uppistandararnir voru mjög góðir þó svo að Björk hafi klárlega staðið framúr með glæsilega sýn á hvernig er að vera kona á miðjum í dag, þá sérstaklega í ljósi skemmtana og kynlífs. Við hlógum eins og vitleysingar af sumum bröndurunum eins og “Hver kaupir eiginlega vöru á 13 þúsund kall á þess að fá að máta” þegar hún var að tala um kaup á víbrador :)

Related posts from the blog:





