Hálfnaður með BSinn
Posted on Dec 16, 2006 in BlogÞá er maður búinn í prófum, kláraði verkefnastjórnunina í gær og held mér hafi bara gengi nokkuð vel, vonandi fæ ég einkunnina fljótt. Um kvöldið var svo auðvitað hresst próflokadjamm. Það hófst nú ekki vel þegar litla systir keyrði mig niðrá Pravda og einhver beygla keyrði á hana. Við redduðum því samt og svo fór ég á efri hæðina á Pravda og þá er náttúrulega enginn mættur nema ég þannig að það var allt rólegt fram eftir kvöldi. Á Pravda vorum við með fullt af Quiznos, piparkökum, snakki og svo náttúrulega kjánalega mikið af bjór og þá meina ég fullt, sjaldan séð svona rosalegar upphæðir á kortinu eftir eitt kvöld í bænum:
961451900010001 Pravda -350,00
961451900010001 Pravda -350,00
961451900010001 Pravda -350,00
961451900010001 Pravda -350,00
961451900010001 Pravda -350,00
961451900010001 Pravda -13.000,00
961451900010001 Pravda -13.000,00
961451900010001 Pravda -13.000,00
Ég hélt að ég hefði bara verið ágætur og myndi allt í þetta skiptið en svo var ég að fatta að ég var miklu lengur niðrí bæ heldur en mig mynnti þannig að ég hef sennilega eitthvað verið að flippa og rugla og ekkert vitað hvað ég var að gera en það er svosem ekki við öðru að búast. Svo er allavegana komin niðurstaða á tímasetning vs áhugi frá því um daginn því ég sá dömuna í faðminum á einhverjum gaur þegar ég var á leiðinni í leigubílaröðina. Oh well lítið við því að gera :P
Frekar fyndið að nokkuð margir voru að kvetja mig til að fara í formanninn hjá Pragma á næsta ári og ég ætlaði nú ekki að gera það því ég hafði áhyggjur af tímanum sem á eftir að fara í BS ritgerðina en ég hefði svo sem alveg áhuga á því að gera það þannig að kanski maður bjóði sig bara fram eftir allt saman.
Við strákarnir ætluðum að skella okkur á Trabant í kvöld en ég held ég sé að fara bakka út úr því það er svo bloody kalt úti að ég nenni ekki niðrí bæ. Búinn að vera bara sötra rauðvín og forrita eins og úrvals einmanna nörd og ætli ég fari ekki barast snemma að sofa. Svo er bara að skella sér í ræktina snemma í fyrramálið og svo uppí skóla að læra fyrir næstu önn (damn you Financial Computer Techniques and Applications), aldrei gefur maður sér tíma í frí :)
Jæja hættur þessu rugli í bili, ætla fara glápa á aðra seríu af Sleeper Cell á Showtime, lang lang besta þáttaröð sem gerð hefur verið. Svo er Hogfather á Sky ONE á morgun, rosalega hlakka ég til.
Related posts from the blog:






