Hallgeirsey 2007

Úhhhjee, hvað er meira keppnis en Hallgeirsey útilegan? Akkurat ekki neitt, Hallgeirsey útilegan var snilld í fyrra og ef eitthvað var hún enn betri þetta árið enda töluvert fleira fólk sem maður þekkti í þetta skiptið. Stjórn verkfræðinema í HÍ á hrós skilið fyrir frábært umstand að útilegunni. Við lögðum af stað, ég, Bjöggi, Helgi, Addi og Marri í samfloti kringum fimm á föstudeginum og heldum austur fyrir fjall, mættum akkurat á besta tíma og komum okkur fyrir. Fyrsti drykkur kvöldsins var svo stærsti Gin & Tonic í heimi eða sirka 1.5L fáranlega góður og sendi mig fljótt inní vitleysuna. Föstudagurinn var stútfullur af gítarstemmingu og vitleysu fram eftir morgni og var tjaldsvæðið klárlega í rúst þegar fólk fór á fætur á laugardeginum. Á laugardeginum var náttúrulega farið inná Hvolfsvöll að spúla af sér í sundi og svo tekinn smá blundur til að safna orku fyrir ofsadrykkjuna. Laugardagurinn einkenndist af “Þegar ég vaknaði í morgun” söng og hinum frábæra “Nórabar” sem var aftaná bílnum hjá Nóra og varð valdur af allskonar vitleysu. Nelli, Raggi, Kjarri og Darri stóðu sig svo glæsilega með hljómsveitina Whatever um kvöldið og síðan var rugl í gangi fram eftir morgun og ekkert sofið að viti. Ég tók klárlega ranga ákvörðun og fór útí Jack og Drambuie í ofsalegu magni þegar líða tók á nóttina og var eiginlega bara orðinn skemmdur þegar farið var heim. Hafði samt rænu til að borða KFC á Selfossi en þegar komið var í bæinn rétt náði ég að skríða uppí rúm áður en ég drapst. Vaknaði síðan ekkert aftur fyrr en klukkan átta í morgun eftir 18 tíma svefn… og var ógnvænlega ekki ferskur í vinnunni.


Related posts from the blog:

Leave a Reply