Hallgeirsey 2008
Posted on Jun 20, 2008 in BlogNúna er komið að því viðburðurinn sem enginn háskólanemi eða fyrrum háskólanemi má láta framhjá sér fara, Hallgeirsey 2008. Ekki voga þér að missa af þessu, þetta verður geðveikt! Miðapantanir eru byrjaðar, þannig að tryggðu þér eintak STRAX!!!
Hallgeirsey er útihátíð háskólanna, haldin af félagi verkfræðinema (FV).
Hátíðin verður haldin 27. – 29. Júní.
Kort – kemur síðar – á meðan er hægt að skoða staðsetninguna á korti á ja.is
Hægt er að panta miða á síðunni. Miðaverð er 4.300kr fyrir háskólanema (sýna þarf fram á háskólaskírteini) 4.900kr fyrir aðra
Í fyrra komust að færri en vildu… tryggðu þér miða strax!
Miðana er síðan hægt að sækja og greiða dagana 22. Júní til 25. júní á English Pub Austurstræti 12 . Við verðum á staðnum frá kl 18:00 til kl. 21:00.
*Hægt er að greiða með því að leggja inn á reikning FV (reikning). Þeir sem greiða gegnum heimabanka verða að senda staðfestingu á greiðslu á fv@hi.is og merkja færsluna með kennitölu. Þeir geta einnig sleppt því að mæta á English pub og mætt beint á Hallgeirsey. Framvísa þarf skilríkjum með þeirri kennitölu sem miðarnir voru greiddir á. Einnig þarf að framvísa háskólaskírteini þess sem greiddi til að fá miðann á háskólaverði.
Frestur til að greiða miðann á heimabanka rennur út kl 18:00 22.júní.
Eftir þann tíma þarf að mæta á English Pub og greiða miðann þar.
Aðeins er hægt að kaupa 4 miða á hverja kennitölu.
Related posts from the blog:
- Hallgeirsey 2008
- Hallgeirsey 2007
- Hallgeirsey
- Verslunarmannahelgi 2008
- Útrskriftarferð í Mexico 2008






