Heiðmörk

Því það var svo yndislegt veður í gær ákváðum við nokkur að taka okkur saman og skella okkkur í Heiðmörk að grilla og sötra. Okkur tókst að smala saman í nokk stóran hóp. Fyrst á staðinn voru að sjálfsögðu Marri og Anna, Marri er náttúrulega sjóaður grill meistari en tókst að gleyma eldspýtunum en það varð engin afturhvörf af því, því ég, Helgi, Bjöggi og Magga komum stuttu síðar og þá var hægt að kveikja í grillinu. Síðar komu svo Addi Magg, Bjarni, Rósa, Maggi, Birna og Þórður. Við flestir steiktu sér gómsæta hamborgara og aðrir pylsur. Bjöggi fór á kostum við grillið og dansaði alveg af gleði því honum finnst svo gaman að grilla. Við fengum okkur nokkra kalda og fórum svo í partý hjá Diljá. Ég stoppaði eitthvað stutt þar því að ég þurfti að fara niðrí bæ þannig að ég fékk far með Marra og Önnu niðrí bæ. Þar skellti ég mér á Carruso þar sem var kveðjuhóf fyrir Reyni og Rebekku sem eru á leið í heimsreisu í næstu viku. Rebekku gekk ekki vel seinast þegar hún ætlaði en vonandi gengur allt upp núna. *bank* 7-9-13. Eftir hittingin skellti ég mér rétt á Ara í Ögri þar sem ég ætlaði að hitta eitthvað af fólkinu sem ég hafði verið með en gafst uppá að bíða og fór og hitti Bjögga og Möggu á Cafe Paris. Fór svo á Dillon að hitta Sigrúnu og fékk far heim :)


Restin af myndunum


Related posts from the blog: