Hólí smókes hann nennti að blogga

Hef ekki verið mjög virkur í skrifum gegnum próf og annað rugl en prófin gengu vel og núna er ég sokkinn í Engineering Optimization. Eng.Op. er sudda sudda erfitt fag… fyrirlestrar 8 til svona 14/15 alla daga og 5 skilaverkefni á dag…. þetta er svona eins og Boot Camp verkfræðinámskeiða… engar afsakanir, engin uppgjöf!!!!

Annars var vikan ágæt, próflokadjammið var seinasta laugardag þar sem margir og minns þar með talið fóru yfir strikið og drukku aðeins of mikið annars var það bara allt í lagi. Byrjuðum heima hjá ella í pulsupartý+1 stelpa og svo fórum við í partý í sal og þaðan í bæinn.

Á miðvikudaginn var svo partý heima hjá mér þar sem var vel fjölmennt og frekar dreifður hópur mættur og stemming fram eftir kvöldi.

Úr einu í annað þá er hér fyrir þá sem ekki hafa séð hið frábæra video með Jónas Óla afritara, útgáfa sem Maggi tók sérstaklega útúr árshátíðar myndbandinu:

Hver kannarst annars ekki við þann sjúka tíma sem tekur að fá lyf í apótekum? Ég þurfti að sækja lyf í Apótek og það tók alveg 20 mín að setja draslið í poka… en þetta skýrir allt saman:

í lokinn er svo nörda húmor með brandara sem ég hefði alveg viljað pulla á Stærðfræði 4/Töluleg Greining námskeiðinu sem ég kenndi um daginn:


Related posts from the blog: