Hvar eru þessir 28 tíma sólarhringar?

“Blah blah blah”. Þetta er eina sem fyrir finnst í hausnum á mér eins og stendur. Ég er að klára að undirbúa kennslu í dæmatíma í stærðfræði 3 fyrir morgundaginn og sé ekki lengur tilgang í að gera dæmin enda orðinn fáranlega tómur í hausnum, klukkan er hálf eitt um nótt á aðfaranótt afmælisdagsins minns og ég vil bara vera heima að kúra en nei á smá eftir enn.

Allavegana þá var seinasti föstudagur alveg frábær. Byrjaði á skull tíma í verðmat þar sem maðurinn er búinn að taka fjóra tíma í að kynna hvað verður farið yfir í námskeiðinu… Eftir verðmat var svo brunað niður í Nauthólsvík þar sem tekin var fyrsta skóflustungan fyrir nýju byggingu Háskólans í Reykjavík. Við hlupum svo nokkur um svæðið með kyndil eins og kjánar og svo stóð Sjósundfélag HR fyrir sundferð í Nauthólsvíkinni. Eini sem tók þátt í þeirri geðveikinni af okkur var Gísli sem ofreyndi sig gjörsamlega við að vera snöggur út, þannig að hann var alveg búinn á því þegar hann kom til baka.


 

Um kvöldið var svo haldin Óvissuferð Pragma þar sem gamanið var hafið á vel heppnaðri bjórtínslu þar sem keppt var milli stúlkna og drengja á fyrsta ári. Eftir tínsluna var haldið með drengina í afródans (sjá video fyrir neðan) og stelpurnar í gítarstemmingu og veigar úti á Granda. Eftir að strákarnir voru svo búnir í dansinum var skipt og stelpurnar fóru í dans og strákarnir í gítarstemmingu og veigar. Því næst var svo haldið í Húnvetningasalinn þar sem Óli Palli þeytti skífum og gleðin stóð til miðnættis og mannskaranum ferjað niður í bæ þar sem djammað var fram eftir morgni.

Eftir að hafa verið í bænum til klukkan hálf fimm á föstudeginum verður maður að hafa talist ógnvænlega ferskur að rífa sig upp klukkan tíu á laugardeginum, bruna uppí HÍ og taka eitt TOEFL próf. Prófið ætlaði reyndar aldrei að byrja vegna tækni örðuleika og þegar það loksins hófst var það hundleiðinlegt og langt og ég var ekki kominn út fyrr en hálf fjögur… Gekk samt bara mjög vel og held ég fái bara fína einkunn. Eftir prófið var ég hinsvegar svo lúinn að ég nennti ekki að gera neitt það sem eftir var dagsins og fór sko ekkert út um kvöldið og tók því bara rólega.

Áðan sendi svo Hjörtur frændi á Pabba nokkrar myndir sem hann tók úr Maraþoninu þar seinustu helgi og hér eru tvær við endamörkin:

Jæja skrifa niður tvö dæmi enn og svo fara að kúra.


Related posts from the blog:

Leave a Reply