Hver ætlar að vaka með mér

Kanski maður taki bara enn eitt late night session á morgun og sjái eitt stykki tunglmyrkva. Einhver sem nennir að læra með mér?
 
 
 

Tekið af mbl.is:

Almyrkvi á tungli annað kvöld

Almyrkvi á tungli verður aðfaranótt fimmtudags og verður hann sjáanlegur frá vestuhluta Evrópu og Afríku, austurhluta Bandaríkjanna og frá Mið- og Suður Ameríku. Tunglmyrkvi verður þegar sól, jörð og tungl ber saman svo jörðin skyggir á tunglið og drungaleg rauð slikja færist yfir það.

Í almanaki Háskóla Íslands segir að tungl sé í suð-suðaustri frá Reykjavík séð þegar það snertir hálfskuggann þrjátíu og fimm mínútum eftir miðnætti.

Hálfskugginn er daufur og verður myrkvinn ekki áberandi fyrr en tungl gengur í alskuggann kl. 1:43. Tunglið verður almyrkvað frá klukkan 3 til 3:52 en miður myrkvi er klukkan 3:26. Tunglið er svo laust við alskuggann kl. 5:09 og við hálfskuggann klukkan 6:17 á fimmtudagsmorgun.


Related posts from the blog: