Hvern hefur ekki langað að fara í MIT?
Posted on Mar 29, 2008 in Blog
Í allri þeirri flóru af skólum sem til eru í heiminum eru nokkrir sem standa sérstaklega uppúr, einn þeirra er hinn víðþekkti MIT. Ég rakst á það að MIT býður nú uppá frían aðgang að kennsluefni fyrir 1800 kúrsa hjá sér!!! Það er mismunandi eftir kúrsum hvað efnið er, glærur, hljóð upptökur, verkefni, video upptökur osfv. Kúrsarnir eru aðgengilegir á OpenCourseWare undirsíðu skólans en MIT er einmitt aðili að OpenCourseWare Consortium. Hér er á ferðinni frábært tækifæri til að kynna sér námsefni eins besta og flottasta verkfræðiskóla heims.
Margir af video- og hljóðfyrirlestrunum eru einnig aðgengilegir í gegnum iTunes U á iTunes Music Store (undirsíðu MIT á iTunes U). Þetta er nú samt ekki einhver himnasending í kennslu enda augljóst að það eru til lélegir kennarar allstaðar. Ég var að skoða t.d: Mathematical Methods for Engineers II sem er kennt af Gilbert Strang og maðurinn er barast alls ekkert spes kennari og skipulag hans í að skrifa á töfluna er fáranlegt. Sæmundur Kjartan (oft nefndur Dæmundur Arctan) goðsagnakennt stærðfræði goð Háskólans í Reykjavík er svona hundrað sinnum betri en samt kvartar fólk undan honum….
iTunes U er annars næsti punktur hjá mér en þetta er klárlega næsta skref í að miðla kennsluefni á auðveldan og þægilegan hátt til fólks. Þar geta nemendur nálgast fyrirlestra á hljóð og video formi. Ég sit nú tvo kúrsa sem nýta sér svipað fyrirkomulag. Annar kúrsinn er Gagnasafnsfræði þar sem veittur er aðgangur að fyrirlestrum í flash video, podcast og iPod video þannig að hægt er að henda þeim beint á iPod eða iPhone. Hinn kúrsinn er Tölulegar aðferðir með C++ þar sem fyrirlestrar eru vistaðir sem AVI skrár. Þetta verður til þess að maður verður ekki lengur háður stundartöflu og getur fylgst með fyrirlestrum þegar manni hentar og gluggað í þá síðar meir aftur t.d. þegar maður er að gera verkefni úr efni fyrirlestursins.
iTunes U bíður ekki eingöngu uppá fyrirlestra frá MIT heldur fjölda annara skóla. Þar eru t.d. Berkeley, Stanford, Yale og fleiri. Allir fyrirlestrar þar inni eru fríir og auðvelt að nálgast efnið beint í gegnum iTunes Music Store og það þarf ekki einu sinni að skrá sig inn :)

Related posts from the blog:
- Ég ætlaði ekki að drekka
- Hólí smókes hann nennti að blogga
- Of margir sopar
- Árshátíð Pragma og Tvíundar 2007
- Átak hefst – Dagur 1





