Hvernig getur þetta gerst….

Þetta er klárlega geðsjúkasta grein sem ég hef séð lengi:

MBL.is – 5.4.2007:

Kærastinn var í raun þrítug kona

14 ára stúlku frá Washington-ríki brá heldur í brún þegar hún komst að því að 17 ára kærasti hennar var í raun þrítug kona, Lorelei Corpuz. Konan þóttist vera táningspiltur en upp um hana komst þegar lögreglumaður athugaði hvort bíll sem hún ók um á væri stolinn og kom þá í ljós að konan átti ógreidda sekt fyrir umferðarlagabrot.

Táningsstúlkan sagði í samtali við sjónvarpsstöðina KOMO-TV í Seattle að hana hefði grunað að eitthvað undarlegt væri á seyði. ,,Kærastinn” hafi verið uppstökkur og hún því spurt lítils. Corpuz þóttist vera munaðarlaus, 17 ára piltur og öðlaðist traust fjölskyldu stúlkunnar. Hún barði stúlkuna og misþyrmdi á meðan á sambandinu stóð.

Corpuz hefur verið ákærð fyrir barnanauðgun og kynferðislega misnotkun á barni. Corpuz tók sér nafnið Mark Villanueva og flutti inn til stúlkunnar. Stúlkan segir í viðtali við Seattle Times í dag að sambandið hafi verið dæmigert fyrir unglinga, þær hafi haldist í hendur, stundað kelerí og faðmast mikið. Corpuz gætti þess þó að sýna stúlkunni aldrei kynfæri sín. Stúlkan vissi því ekki að kærastinn væri kona fyrr en lögreglumaður sagði henni það.

Yfirvöld í Everett, bænum sem stúlkan býr í, telja að Corpuz hafi haft mök við stúlkuna, barið hana og bitið í bakið tvisvar sinnum. AP birtir ekki nafn stúlkunnar þar sem um kynferðisbrot gegn barni er að ræða.

What the hell, hvernig getur svona lagað gerst… hversu heimskt er fólk eiginlega.


Related posts from the blog: